„Við bjuggum okkur vel undir þennan leik,“ sagði Díana Guðjónsdóttir þjálfari Hauka í samtali við handbolta.is í kvöld eftir 13 marka sigur Hauka á Stjörnunni, 36:23, í fyrstu viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna á Ásvöllum.
„Við höfum verið í erfiðum leikjum við Stjörnuna í vetur og þess vegna var alveg geggjað að ná svona öruggum sigri í kvöld,“ sagði Díana sem var hörð á að varnarleikur Hauka hafi lagt grunn að sigrinum.
Strax í fyrri hálfleik náðu Haukar öruggu forskoti eftir að sóknarleikur Stjörnunnar gekk ekki sem skildi. Um leið sköpuðust möguleikar á auðveldum mörkum og þegar fyrri hálfleikur var að baki voru Haukar með sex marka forskot, 17:11.
„Varnarleikurinn skóp þennan sigur fyrst og fremst. Magga var síðan sterk fyrir aftan enda vill markvarslan yfirleitt fylgja með,“ sagði Díana en nánar er rætt við hana í myndskeiðinu efst í fréttinni.
Næsti leikur liðanna verður í Mýrinni á mánudagskvöldið.