Undankeppni EM2022 í karlaflokki hófst í gær með sex leikjum og verður framhaldið í dag með fjórum viðureignum. Einnig fara leikir fram á laugardag og sunnudag, alls tíu leikir.
Úrslit leikja gærdagsins er að finna hér að neðan:
2.riðill:Austurríki - Eistland...
Portúgal vann níu marka sigur á Ísrael, 31:22, en lið þjóðanna eru í riðli með íslenska og litháenska landsliðinu í undankeppni EM2022. Portúgal var tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:12. Leikið var í Matosinhos í nágrenni Porto...
„Menn voru mættir hér á fullu. Þannig hófst leikurinn og þannig enduðum við leikinn. Það var aldrei gefin tomma eftir,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, í samtali við handbolta.is eftir sigurinn á Litháen, 36:20, í Laugardalshöll...
„Þetta var ánægjulega stund. Ég er mjög glaður að vera mættur á ný í landsliðsbúninginn,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson sem klæddist landsliðspeysunni í fyrsta sinn í 22 mánuði í gærkvöld þegar íslenska landsliðið mætti landsliði Litháen í Laugardalshöll í...
Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í hollenska landsliðinu byrjuðu undankeppni EM í handknattleik karla í gærkvöldi með naumum sigri á Tyrkjum, 27:26, í Almere í Hollandi en liðin eru í 5. riðli ásamt Slóvenum og Pólverjum.
Það blés ekki byrlega framan...
Viðureign Dana og Svisslendinga sem fram átti að fara í gærkvöld í Árósum í undankeppni EM í handknattleik karla var frestað um sólarhring meðan leitað var að hugsanlegu smiti í herbúðum landsliðs Sviss. Fimm leikmenn lágu undir grun eftir...
„Ég er viss um að við sýndum það í kvöld að við ætluðum ekki að gefa neitt eftir, vorum klárir frá byrjun og héldu áfram allt til enda,“ sagði Ýmir Örn Gíslason sem fór á kostum í íslensku vörninni...
„Það var bara alveg geggjað að spila með strákunum,“ sagði Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson sem fór á kostum í sínum fyrsta stórleik með A-landsliðinu í kvöld gegn Litháen. Hann nýtti tækifærið svo sannarlega í botn og skoraði átta mörk...
„Við spiluðum alveg ótrúlega vel,“ sagði Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik glaður í bragði í samtali við handbolta.is eftir stórsigur íslenska landsliðsins á Litháum, 36:20, í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni EM.
„Við keyrðum bara á þá frá upphafi...
Íslenska landsliðið hóf undankeppni EM í handknattleik karla í kvöld af miklum krafti þegar það lagði Litháen, 36:20, í fyrstu umferð undankeppninnar. Forskotið var níu mörk í hálfleik, 19:10. Leikmenn Litháen virtust aldrei vera líklegir til að gera rósir...