Barna- og unglingaráð HK hefur ráðið Hákon Hermannsson Bridde í starf yfirþjálfara yngri flokka hjá HK. Hákon er öllum hnútum kunnugur innan félagsins en hann lék með HK upp alla yngri flokkana og spilaði fjölmarga leiki með meistaraflokki HK....
Stephan Swat, þjálfari þýska handknattleiksliðsins EHV Aue sem Arnar Birkir Hálfdánsson og Sveinbjörn Pétursson leika með, var hætt kominn fyrir áramótin eftir að hafa veikst alvarlega af kórónuveirunni um miðjan nóvember. Swat hefur alls ekki jafnað sig að fullu...
Samherji Bjarka Más Elíssonar hjá Lemgo hefur greinst með kórónuveiruna. Af þeim sökum hefur tveimur næstu leikjum liðsins verið slegið á frest. Lemgo átti að mæta Gunnari Steini Jónssyni og félögum í Göppingen og Tusem Essen á fimmtudaginn eftir...
Ísland dróst í sjötta riðil undankeppni EM kvenna 2022 með Svíþjóð, Serbíu og Tyrklandi en dregið var í morgun í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vínarborg.
Tvö af liðunum komast áfram í lokakeppnina sem fram fer í Slóveníu, Norður-Makedóníu og...
Eins og greint var frá í gær þá verður ekkert leikið á Íslandsmótinu í handknattleik næstu vikurnar eftir að hertar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti. Einnig er óheimilt að stunda æfingar.
Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, sagði í samtali...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og félagar í Skövde eru komnir í góða stöðu í rimmu sinni við Alingsås í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir sigur í annarri viðureign liðanna í gærkvöld á heimavelli Alingsås, 27:22. Skövde hefur þar...
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach komust á ný upp í annað sæti þýsku 2. deildarinnar í handknattleik með góðum sigri á Hamm-Westfalen á heimavelli, 30:21. Það var vatn á myllu Gummersbach-liðsins að N-Lübbecke sem sat í öðru sæti...
Andrea Jacobsen og samherjar í Kristianstad töpuðu öðru sinni í röð fyrir Skara HF eftir framlengingu í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld og er Skara þar með komið með tvo vinninga í rimmu liðanna.
Að þessu sinni...
Sigvaldi Björn Guðjónsson nýtti öll sín skot til þess að skora mörk þegar lið hans Vive Kielce vann Zaglebie Lubin, 44:23, í pólsku 1. deildinni í handknattleik karla í dag. Þetta var átjándi sigurleikur Vive Kielce í deildinni á...
Leikjum á Íslandsmótinu í handknattleik sem fram áttu að fara í kvöld hefur verið frestað. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, sendi frá sér fyrir stundu.
Til stóð að einn leikur færi fram í Olísdeild karla og...