- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hákon ráðinn til HK

Hákon Bridde fyrir miðri mynd ásamt forsvarsmönnum HK. Mynd/HK
- Auglýsing -

Barna- og unglingaráð HK hefur ráðið Hákon Hermannsson Bridde í starf yfirþjálfara yngri flokka hjá HK. Hákon er öllum hnútum kunnugur innan félagsins en hann lék með HK upp alla yngri flokkana og spilaði fjölmarga leiki með meistaraflokki HK. Þá þjálfaði Hákon um árabil yngri flokka félagsins og kom einnig að þjálfun meistaraflokka HK.


Frá 2018 – 2020 þjálfaði Hákon meistarflokk karla og kvenna og yngri flokka Florø SK handball í Noregi, en undanfarið ár hefur hann verið yfirþjálfari hjá Gróttu.


Hákon er með BSc gráðu í Sport Sience frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í kennslufræðum frá sama skóla.

„Sem yfirþjálfari mun Hákon leiða það verkefni að efla yngriflokkastarf HK með fræðslu og stuðningi við þjálfara, auk þess að þjálfa sjálfur yngri flokka hjá félaginu. Hákon mun einnig starfa sem handboltaþjálfari við MK akademínuna og leiða afreksstarf HK,“ segir í tilkynningu frá Handknattleiksdeild HK.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -