Valsmenn fögnuðu sigri í Coca Cola-bikarnum í handknattleik karla eftir sigur á KA, 36:32, í hörkuskemmtilegum úrslitaleik á Ásvöllum í dag. Þetta er annað árið í röð sem Valur vinnur bikarkeppnina í karlaflokki.
KA-menn veittu gríðarlega mótspyrnu hvattir á...
Valur varð bikarmeistari kvenna í handknattleik í áttunda sinn í dag. Valur lagði Fram með sex marka mun í úrslitaleik Coca Cola-bikarsins á Ásvöllum, 25:19, eftir að hafa verið marki yfir, 12:11, að loknum fyrri hálfleik.
Fram hóf leikinn af...
Ungmennaliði Selfoss tókst ekki að vefjast fyrir leikmönnum Harðar í viðureign liðanna í Set-höllinni á Selfossi í dag en viðureign liðanna var í Grill66-deild karla í handknattleik. Hörður vann með 12 marka mun, 41:29. Eins og oft áður þá...
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og sjöunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins voru Jói Lange og Gestur Guðrúnarson.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir undanúrslitaleikina í Coca-Cola bikar...
Valur og KA leiða saman hesta sína í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í handknattleik á Ásvöllum í dag. Margir telja Valsmenn vera sigurstranglegri í leiknum. Þeir eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar og kjöldrógu FH-inga í undanúrslitum á miðvikudaginn. Þar...
„Að mínu mati þá léku Fram og Valur sína bestu leiki á keppnistímabilinu í undanúrslitum á fimmtudagskvöldið, ekki síst Fram-liðið. Það var virkilega gott,“ sagði Sigurjón Friðbjörn Björnsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, og spámaður handbolta.is sem leitað er til...
Í dag verður á Ásvöllum í Hafnarfirði leikið til úrslita í bikarkeppni HSÍ, Coca Cola-bikarnum, í meistaraflokki kvenna og karla. Úrslitaleikirnir eru einn hápunkta keppnistímabilsins ár hvert. Flautað verður til leiks í úrslitaviðureignunum kl. 13.30 og 16. Um leikina...
Ungverski markvörðurinn Martin Nagy sem lék með Val á síðasta keppnistímabili og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu á síðasta vori hefur framlengt samning sinn við þýska 2. deildarliðið Gummersbach til tveggja ára, til ársins 2024. Guðjón Valur Sigurðsson er...
Eftir að hafa tapað fyrir ÍR á miðvikudagskvöld þá bitu leikmenn ungmennaliðs Gróttu í skjaldarrendur í kvöld við komu í Hertzhöllina á Seltjarnarnesi með þeim afleiðingum að þær héldu heim á leið að leikslokum með stigin tvö sem sem...
Haukar unnu Coca Cola-bikarinn í handknattleik kvenna i 3. aldursflokki kvenna í kvöld. Haukar unnu stórsigur á Fram í úrslitaleik, 40:15, eftir að hafa verið 13 mörkum yfir í hálfleik, 19:6.
Eins og úrslitin gefa til kynna þá voru yfirburðir...