Monthly Archives: March, 2022

Tók fram skóna og leikur til úrslita

Hörður Fannar Sigþórsson tók handboltaskóna ofan af hillunni á dögunum ekki til einskis. Hann mun leika til úrslita um færeyska meistaratitilinn í handknattleik karla með samherjum sínum í KÍF frá Kollafirði. Þetta liggur fyrir eftir að KÍF vann meistaralið...

Kærkominn sigur í lífróðri

Lífróður Stuttgart fyrir áframhaldandi veru í þýsku 1. deildinni í handknattleik gekk ágætlega í kvöld. Liðið, sem Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson leika með, vann Erlangen, 34:29, á heimavelli. Stuttgart er eftir sem áður í 15. sæti...

Fyrsti leikur Íslands verður á heimavelli

Þegar liggur fyrir að fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2024 verður á heimavelli gegn Ísrael 12. eða 13. október á þessu ári. Nokkrum dögum síðar verður leikið við landslið Eistlands á útivelli. Dregið var í riðla fyrr í...

Tékkar, Eistlendingar og Ísraelsmenn eru andstæðingar Íslands

Íslenska landsliðið er í þriðja riðli í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik en dregið var í dag í Berlín. Með íslenska landsliðinu í riðli verða landslið Tékklands, Ísraels og Eistlands. Íslenska landsliðið var líka með Ísrael í riðli í...

Framlengir dvöl sína hjá PAUC til 2024

Örvhenta stórskyttan og landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, hefur framlengt samning sinn við franska 1. deildarliðið, PAUC, Pays d'Aix Université Club Handball, fram til loka leiktíðarinnar 2024. Félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum í dag. Donni gekk til liðs við...

Beint: Dregið í riðla undankeppni EM 2024

Dregið er í riðla í undankeppni Evrópumótsins karla í handknattleik í Berlín í dag. Dregið verður í átta fjögurra liða riðla undankeppninnar sem hefst í október. Ísland er í fyrsta styrkleikaflokki af fjórum. Handbolti.is fylgist með drættinum í textalýsingu hér...

Myndaveisla: FH – ÍBV

ÍBV hafði sætaskipti við FH í þriðja sæti Olísdeildar karla í handknattleik í gær með sigri, 34:29, í viðureign liðanna í Kaplakrika eftir að hafa verið yfir, 19:13, að loknum fyrri hálfleik. Staðan í Olísdeildinni. Jói Long var að...

Tveir verða að taka út leikbann

Arne Karl Wehmeier leikmaður Kórdrengja og Jón Örnólfsson liðsmaður Stjörnunnar U voru úrskurðaðir í eins leiks keppnisbann á fundi aganefndar HSÍ í vikunni. Báðir voru útilokaðir í kappleikjum á dögunum vegna grófrar óíþróttamannslegrar framkomu. Dómarar mátu brot þeirra...

Miðasala á leikinn við Austurríki er hafin

Klukkan 12 á hádegi í dag hófst miðasala á landsleik Íslands og Austurríki í undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik sem fram fer á Ásvöllum í Hafnarfirði laugardaginn 16. apríl klukkan 16. Miðasala fer eingöngu fram á Tix.is - smellið hér....

Poulsen leikur ekki meira með Fram

Vilhelm Poulsen leikur ekki fleiri leiki með Fram eftir að hafa meiðst undir lok viðureignar Fram og Vals í Olísdeild karla í handknattleik á laugardaginn. Liðbönd í öðrum ökkla Færeyingsins eru rifin og ljóst að nokkrar vikur getur tekið...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Um er að ræða einstakt afrek – við spilum frábæran handbolta

„Við höfum leikið 30 leiki á tímabilinu og unnið 29. Ég held að fullyrða megi að um einstakt afrek...
- Auglýsing -