„Fram að þessum tíu til fimmtán mínútna kafla var leikur okkar góður og greinilegar áframhaldandi framfarir hjá liðinu. Við munum skoða gaumgæfilega hvað fór úr skorðum hjá okkur á lokakaflanum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik við handbolta.is...
Hafin er miðasala hjá tix.is á viðureign Íslands og Tékklands í handknattleik karla sem fram fer í Laugardalshöll sunnudaginn 12. mars klukkan 16. Leikurinn er liður í undankeppni EM 2024. Um sannkallaðann toppslag er að ræða í riðlinum þar...
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Nantes unnu PAUC, 39:28, á heimavelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Viktor Gísli stóð í marki Nantes hluta leiksins og varði sjö skot. Kristján Örn Kristjánsson er í veikindaleyfi og...
Glatt var á hjalla í Thansen ARENA í Fredericia í dag þegar Fredericia Håndboldklub vann Aalborg Håndbold í fyrsta sinn í 20 ár í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Lokatölur voru 29:28. Guðmundur Þórður Guðmundsson er þjálfari Fredericia Håndboldklub og...
U17 ára landslið kvenna í handknattleik beið lægri hlut í síðari vináttulandsleik sínum við Tékka i Prag í kvöld, 28:14. Liðið tapaði einnig fyrri viðureigninni sem fram fór í gær.
Íslenska liðið átti undir brattann að sækja í fyrri hálfleiknum...
„Liðið var ólíkt sjálfu sér að þessu sinni og braut sig svolítið úr því sem við höfðum lagt upp með,“ sagði Árni Stefán Guðjónsson þjálfari U19 ára landsliðs kvenna við handbolta.is í kvöld eftir sjö marka tap, 24:17, fyrir...
„Það var svekkjandi hvernig botninn datt úr þessu hjá okkur á lokakaflanum eftir að hafa leikið frábærlega. Ljóst að við verðum að fara vel yfir hvað fór úrskeiðis. Á þessari stundu átta ég mig ekki á því,“ sagði Sunna...
Kvennalandsliðið í handknattleik tapaði með þriggja marka mun fyrir norska B-landsliðinu í síðari vináttuleiknum á Ásvöllum í dag, 29:26. Síðasta stundarfjórðung leiksins gekk flest á afturlöppunum hjá liðinu. Það missti niður sjö marka forystu, 22:15, á þessum kafla. M.a....
U19 ára landsliðs Íslands og Tékklands í handknattleik kvenna mætast öðru sinni í vináttulandsleik í Louny í Tékklandi í dag. Leikurinn hefst klukkan 17.
Tékkar unnu fyrri viðureignina sem fram fór í gær með eins marks mun, 26:25....
Hér fyrir neðan er streymi frá síðari vináttulandsleik Íslands og Noregs B í handknattleik kvenna sem hefst á Ásvöllum klukkan 16.
Smellið á rauðu örina hér fyrir neðan. Þá opnast útsendingin.
https://www.youtube.com/watch?v=WxkQNBcOOTY