- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: May, 2026

Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð

Valur tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna með því að leggja ÍBV að velli, 30:26, í fjórða leik liðanna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Valur vann einvígið þar með 3:1. Valur er Íslandsmeistari í 21. sinn í kvennaflokki. Valskonur fögnuðu...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin var uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vatt fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar voru sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Katrín Tinna til liðs við HH Elite í Horsens

Landsliðskonan Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite í Horsens á Austur-Jótlandi frá og með næsta keppnistímabili. Katrín Tinna, sem er 23 ára gömul, hefur leikið með ÍR frá ársbyrjun 2024 auk þess að vera mikilvægur...

Lokahóf: Aðalsteinn og Berglind best hjá Fjölni

Handknattleiksdeild Fjölnis hélt nýverið lokahóf sitt, þar sem leikmenn, þjálfarar og stuðningsfólk komu saman til að fagna vel heppnuðu tímabili. Stemningin var frábær og gleðin rík, enda margs að minnast eftir veturinn. Á hófinu voru veittar viðurkenningar til leikmanna sem...

Birgir Már leikur í Sviss næstu tvö ár

Birgir Már Birgisson, hægri hornamaður FH, hefur skrifað undir tveggja ára samning við svissneska félagið GC Amicitia Zürich og gengur til liðs við það í sumar. Birgir Már hefur verið mikilvægur hlekkur í FH-liðinu allt frá því að hann...

Fjórir þjálfarar koma helst til greina í þjálfarastólinn í Noregi

Fjórir þjálfarar þykja líklegastir í kapphlaupinu um starf landsliðsþjálfara Noregs í karlaflokki þegar Jonas Wille leggur niður vopnin í lok mánaðar. Stjórnendur norska handknattleikssambandsins sáu þann kost vænstan eftir Evrópumótið í upphafi árs að bjóða Wille ekki nýjan samning...

Fjórði úrslitaleikurinn í Eyjum

Fjórði úrslitaleikur ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í Vestmannaeyjum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Valur hefur tvo vinninga en ÍBV einn. Þrjá vinninga þarf til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Valur á...

Þorvaldur verður áfram í Mosfellsbæ

Línu- og varnarmaðurinn trausti Þorvaldur Tryggvason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu. Hann kom til félagsins frá Fram fyrir þremur árum og hefur leikið 92 leiki með Mosfellingum og skorað 105 mörk en ekki síst verið...

Myndskeið: Ísak á markvörslu ársins í Noregi

Ísak Steinsson markvörður Drammen og íslenska landsliðsins á bestu markvörslu ársins í norsku úrvalsdeildinni samkvæmt kosningu almennings á vefsíðunni Norsk Topphåndball. Tvöföld markvarsla Ísaks í leik gegn Fjellhammer hreif lesendur en tilþrifin má sjá í myndskeiði hér fyrir neðan. ...

Sebastian ráðinn til þriggja ára hjá Aftureldingu

Sebastian Alexanderson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í handknattleik. Ekki er tjaldað til einnar nætur því Sebastian skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Sebastian hefur tvö síðustu ár þjálfað kvennalið Víkings í Grill 66-deildinni, þeirri sömu og...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var...
- Auglýsing -