- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þorvaldur verður áfram í Mosfellsbæ

- Auglýsing -

Línu- og varnarmaðurinn trausti Þorvaldur Tryggvason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu. Hann kom til félagsins frá Fram fyrir þremur árum og hefur leikið 92 leiki með Mosfellingum og skorað 105 mörk en ekki síst verið ábyggilegur varnarmaður.

„Þorvaldur er gríðarlega mikilvægur varnarlega og getur spilað á báðum endum vallarins. Þorvaldur er mikill leiðtogi og er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins. Það eru miklar gleðifréttir að Þorvaldur hafi ákveðið að framlengja við félagið og við hlökkum til að sjá hann leika áfram í rauðu treyjunni,“ segir orðrétt í tilkynningu Aftureldingar í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -