- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Öruggt hjá ungmennunum á Selfoss

Kórdrengir reka áfram lestina án stiga í Grill 66-deild karla í handknattleik þegar farið er að sjá fyrir enda á 5. umferð deildarinnar. Drengirnir töpuðu með fimm marka mun fyrir skeinuhættu ungmennaliði Selfoss í gærkvöld í Sethöllinni, 34:29. Forskot heimamanna...

Molakaffi: Gísli, Donni, Grétar, Sveinn, Daníel, Ristovski, Obrvan

Gísli Þorgeir Kristjánsson hafnaði í öðru sæti í kjöri á leikmanni októbermánaðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Hann hlaut um 19% atkvæða. Domenico Ebner, markvörður Hannover-Burgdorf, hreppti hnossið með ríflega 71% atkvæða.  Kristján Örn Kristjánsson, Donni, átti tvær skottilraunir...

Slóvenar slógu Dani út af laginu – andstæðingar Íslands mættust

Slóvenar komu í veg fyrir að Danir fengju þá óskabyrjun sem þeir vonuðust eftir á Evrópumeistaramótinu í handknattleik kvenna í Celje í Slóveníu í kvöld. Með afar góðum leik, ekki síst í síðari hálfleik, þá unnu Ana Gros og...

Þórir og norska landsliðið byrjaði EM á níu marka sigri

Evrópumeistarar Noregs, undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar, hófu titilvörnina á Evrópumeistaramótinu í handknattleik í kvöld með glæsibrag. Niðurstaðan var níu marka sigur á króatíska landsliðinu í síðari leik kvöldsins í A-riðli í Ljubljana í Slóveníu, 32:23, eftir að...
- Auglýsing-

Haukar standa í stórræðum á Nikósíu

Karlalið Hauka í handknattleik stendur í stórræðum um helgina. Fyrir dyrum standa tveir leikir við Sabbianco Anorthosis Famagusta á Nikósíu á Kýpur á morgun og á sunnudaginn í 2. umferð Evrópubikarkeppni. Báðar viðureignir hefjast klukkan 18 að okkar tíma. Aðeins...

Óvissa bíður ÍBV-liðsins í Evrópuleikjum við Donbas

Eyjamenn renna algjörlega blint í sjóinn vegna leikja sinna tveggja við úkraínska liðið Donbas sem fram fara í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum á morgun og sunnudag. Leikirnir eru liður í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla og hefjast klukkan 14...

Dagskráin: Kórdrengir fara austur fyrir fjall

Einn leikur verður á dagskrá Íslandsmóts meistaraflokka í kvöld. Í Grill 66-deild karla fara leikmenn Kórdrengja austur fyrir fjall og sækja ungmennalið Selfoss heim í Sethöllina. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Staðan í Grill 66-deild karla: HK5410167 – 1359Valur U5410148 –...

Styttist í leikina mikilvægu hjá kvennalandsliðinu

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir Ísrael í tveimur leikjum í forkeppni heimsmeistaramótsins á Ásvöllum á morgun laugardag og á sunnudaginn. Báða daga verður flautað til leiks klukkan 15. Frír aðgangur verður á leikina í boði Arion banka. Leikirnir...
- Auglýsing-

Molakaffi: Tryggvi, Bjarni, Ásgeir, Ingibjørg, Johansson,

Tryggvi Þórisson og samherjar í Sävehof komust upp í annað sæti í sænsku úrvalsdeildinni með sigri á Lugi, 29:20, á heimavelli. Tryggvi lék með Sävehof en skoraði ekki að þessu sinni. Sävehof hefur 12 stig að loknum átta leikjum...

Breki og Ísak skoruðu 22 mörk – Fjölnismenn í basli

Valsmennirnir Breki Hrafn Valdimarsson og Ísak Logi Einarsson skoruðu 11 mörk hvor fyrir ungmennaliðið í kvöld þegar það lagði Fjölni með níu marka mun, 34:25, í Grill 66-deild karla í handknattleik. Með sigrinum fór Valsliðið upp að hlið HK...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18863 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -