- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Textalýsing: Dregið í 1. umferð bikarkeppni HSÍ

Dregið var í 1. umferð bikarkeppni HSÍ í karlaflokki klukkan 11 á skrifstofu HSÍ. Handbolti.is fylgdist með framvindunni í textalýsingu hér fyrir neðan.

Myndasyrpa: Grannaslagur í Kaplakrika

FH vann Hauka í hörkuleik Kaplakrika í Hafnarfirði í gærkvöld, 27:26, í upphafsleik 6. umferðar Olísdeildar karla. Birgir Már Birgisson skoraði sigurmarkið 45 sekúndum fyrir leikslok. Haukar áttu síðustu sóknina og Andri Már Rúnarsson síðasta markskotið sem Phil Döhler...

Dagskráin: Sex viðureignir í þremur deildum

Sex leikir verða á dagskrá Íslandsmóts meistaraflokka karla og kvenna í kvöld. Sjöttu umferð verður framhaldið í Olísdeild karla eftir að FH og Haukar riðu á vaðið í gærkvöld í hörkuleik í Kaplakrika. Til viðbótar hefst fjórða umferð í Grill66-deildum...

Molakaffi: Heiðmar, Arnór, Viktor, Óskar, Örn, Aðalsteinn, Ólafur, Guðmundur, Einar, Sveinn

Hannover-Burgdorf komst í gær í 16-liða úrslit í þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Liðið vann Stuttgart, 26:20, á heimavelli. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.  Arnór Þór Gunnarsson er kominn í 16-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik með liði sínu, Bergischer HC....
- Auglýsing-

Döhler tryggði FH bæði stigin í grannaslag

Phil Döhler, markvörður, sá til þess að FH fór með bæði stigin í viðureign sinni við granna sína í Haukum í Kaplakrika í kvöld. Þjóðverjinn hafði verið daufur í markinu í síðari hálfleik en reis upp þegar mest á...

Ómar Ingi og Gísli eru komnir í undanúrslit

Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt þegar SC Magdeburg vann sádi arbíska liðið Khaleej, 35:29, í riðlakeppni heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik í Dammam í Sádi Arabíu í dag. Þar með komust meistarar síðasta árs...

Ekki verður dregið lengur að draga

Dregið verður í fyrstu umferð í karlaflokki í bikarkeppni HSÍ klukkan 11 á morgun á skrifstofu HSÍ. Þrjár viðureignir standa fyrir dyrum í fyrstu umferð en 19 lið eru skráð til keppni. Þau eru: Afturelding, FH, Fjölnir, Fram, Grótta,...

Sló í bakseglið hjá Darra – hittir lækni eftir helgi

Því miður sló í bakseglið hjá handknattleiksmanninum Darra Aronssyni á dögunum svo óvíst er hversu lengi hann verður frá keppni til viðbótar. Darri ristarbrotnaði um miðjan júlí rétt áður en hann fór til franska liðsins US Ivry og hefur...
- Auglýsing-

Þreifa sig áfram með þrjá dómara

Sex árum eftir að Handknattleikssamband Evrópu velti vöngum yfir að bæta við þriðja dómaranum inn á handknattleiksvöllinn mátar Alþjóða handknattleikssambandið sig við þriggja dómara kerfi á heimsmeistaramóti félagsliða í karlaflokki sem stendur yfir í Dammam í Sádi Arabíu. Verði góð...

Stórskytta Gróttu úr leik næstu vikurnar

Stórskyttan Birgir Steinn Jónsson leikur ekki með Gróttu næstu vikurnar eftir að hafa handarbrotnað á æfingu liðsins í byrjun vikunnar. Vísir segir frá meiðslum Birgis Steins í morgun. Birgir Steinn verður í gifsi næstu þrjár til fjórar vikur af...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19247 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -