- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valur byrjaði með 11 marka sigri

Valur vann öruggan sigur Selfossi í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í Origohöllinni í kvöld, 36:25, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:14. Næsta viðureign liðanna verður á fimmtudaginn í Sethöllinni...

Fjölnismenn bitu frá sér

Fjölnismenn bitu frá sér í kvöld þegar þeir unnu ÍR nokkuð örugglega, 27:23, í öðrum leik liðanna í umspili um sæti í Olísdeild karla í Dalhúsum. Þar með er staðan jöfn, hvort lið hefur einn vinning. Næsti leikur liðanna...

Myndskeið: Sigurmark Gísla Þorgeirs og markvarsla Green

Gísli Þorgeir Kristjánsson tryggði SC Magdeburg afar mikilvægan sigur á Füchse Berlín í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 28:27. Markið skoraði hann þegar 48 sekúndur voru til leiksloka. Um var að ræða eitt fimm marka Hafnfirðingsins í leiknum. Sigurinn færir...

Ráðinn þjálfari unglingalandsliðs í Færeyjum

Handknattleiksþjálfarinn Kristinn Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari U16 ára landsliðs kvenna í Færeyjum. Kristinn þekkir vel til í færeyskum handknattleik eftir að hafa verið þjálfari hjá kvennaliði EB á Eiði á nýliðnu keppnistímabili. Við hlið Kristins með unglingalandsliðið verður Færeyingurinn...
- Auglýsing-

Þórey Rósa bætir við þremur árum

Landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Fram. Hún hefur verið ein burðarása í sterku liði Fram síðustu árin eftir að hafa skilað sér heim aftur fyrir fimm árum að lokinni átta ára...

Eins mikil óheppni möguleg er

„Sigurmarkið var eins mikil óheppni af okkar hálfu og mögulegt er,“ sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs Hauka, eftir að lið hans tapaði, 24:23, í fyrir Íslandsmeisturum KA/Þórs í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildarinnar í handknattleik kvenna í gær. Aldís Ásta...

Dramatík þegar Íslendingalið tapaði í undanúrslitum

Óskar Ólafsson og samherjar í Drammen féllu á dramatískan hátt úr leik í undanúrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik í gær eftir vítakeppni í síðari leiknum við annað norskt lið, Nærbø, 35:31. Liðin unnu sinn leikinn hvort með sömu markatölu, 30:27 Gripið...

Vika í fyrsta leik í umspilinu

Fyrsti úrslitaleikurinn í umspili um sæti í Olísdeild kvenna á milli HK og ÍR fer fram eftir viku í Kórnum í Kópavogi, heimavelli HK. Vinna þarf þrjá leiki og komi til fimmta leiksins verður hann háður föstudaginn 20. maí...
- Auglýsing-

Dagskráin: Selfoss sækir meistarana heim – umspilið heldur áfram

Valur og Selfoss hefja leik í kvöld í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Liðin ríða á vaðið í Origohöllinni og gefa dómarar leiksins merki um að leggja af stað klukkan 19.30. Íslands-, deildar-, og bikarmeistarar Vals unnu Fram örugglega í...

Molakaffi: Viggó, Ýmir Örn, Alexander, Arnar Freyr, Elín Jóna, Sara Dögg, Elliði Snær

Viggó Kristjánsson skoraði átta mörk, þar af sex úr vítaköstum, þegar Stuttgart vann mikilvægan sigur á Leipzig á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær, 29:25. Andri Már Rúnarsson skoraði ekki mark í leiknum fyrir Stuttgart sem...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18733 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -