- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Viggó, Ýmir Örn, Alexander, Arnar Freyr, Elín Jóna, Sara Dögg, Elliði Snær

Viggó Kristjánsson landsliðsmaður og leikmaður Stuttgart í Þýskalandi. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Viggó Kristjánsson skoraði átta mörk, þar af sex úr vítaköstum, þegar Stuttgart vann mikilvægan sigur á Leipzig á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær, 29:25. Andri Már Rúnarsson skoraði ekki mark í leiknum fyrir Stuttgart sem mjakast aðeins frá neðstu liðunum og úr allra mestu fallhættunni. 
  • Ýmir Örn Gíslason var í liði Rhein-Neckar Löwen sem vann neðsta lið þýsku 1. deildarinnar, Nettelstedt-Lübbecke, 29:22, á útivelli í gær. Ýmir Örn skoraði ekki en var aðsópsmikill í vörninni að vanda. Rhein-Neckar Löwen er í 9. sæti. 
  • Alexander Petersson skoraði tvö mörk og Arnar Freyr Arnarsson eitt þegar Melsungen tapaði naumlega fyrir Kiel, 27:25, í Kiel í gær. Melsungen situr í áttunda sæti þýsku 1. deildarinnar. 
  • Elín Jóna Þorsteinsdóttir lék ekki með Ringkøbing Håndbold í gær vegna meiðsla þegar liðið vann TMS Ringsted, 35:26, í fyrstu viðureign liðanna í umspili um sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Elín Jóna meiddist í leik með íslenska landsliðinu gegn Svíum  í undankeppni EM fyrir 12 dögum. Hún tók reyndar þátt í viðureigninni við Serbíu nokkrum dögum síðar en var ekki heil heilsu. Ringkøbing Håndbold og Ringsted mætast aftur í Ringsted á laugardaginn. Ef til oddaleiks kemur þá fer hann fram í Ringkøbing laugardaginn 14. maí. 
  • Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði ekki mark fyrir Gjerpen HK Skien þegar liðið gerði jafntefli á útivelli vð Levanger í umspili um sæti í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Um var að ræða fyrsta leik Söru og samherja í keppninni. 
  • Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark þegar Gummersbach vann öruggan sigur á Nordhorn, 35:25, í uppgjöri tveggja efstu liða þýsku 2. deildarinnar í handknattleik á heimavelli í gær. Gummersbach hefur nú níu stiga forskot í efsta sæti deildarinnar þegar sjö leikir standa út af borðinu hjá liðinu.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -