- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tap á rekstri HSÍ – tillaga um eina deild kvenna var felld

65.ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, fór fram í Origo-höllinni að Hlíðarenda fyrr í dag. 76 manns sátu þingið, þar af 50 þingfulltrúar frá aðildarfélögunum. Velta HSÍ á árinu var tæpar 319 milljónir kr. en tap á rekstri sambandsins var 5,8 milljónir....

Reiknum með fimm leikja rimmu

„Við búum okkur undir jafnt einvígi sem reikna má með að fari í fimm leiki,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, þjálfari karlaliðs ÍR en liðsmenn hans hefja í dag úrslitarimmu við Fjölni um sæti í Olísdeild karla á næsta keppnistímabili. Fyrsta...

Til stendur að fjölga í lokakeppni EM yngri liða

Talsverðar líkur eru á að keppnisliðum verði fjölgað úr 16 í 24 í lokakeppni Evrópumóta yngri landsliða karla og kvenna frá og með mótunum sem fram eiga að fara eftir tvö ár. Þetta var eitt þeirra mála sem rædd...

Meistaralið Þóris mætir bronsliðinu í upphafsleik á EM

Evrópu- og heimsmeistarar Noregs í handknattleik kvenna sem Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar, verða í A-riðli þegar titilvörnin hefst á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Slóveníu, Svartfjallalandi og Norður Makedóníu 4. - 20. nóvember á þessu ári. Dregið hefur verið...
- Auglýsing-

Dagskráin: Sumarfrí eða fleiri leikir – baráttan hefst í umspilinu

Áfram heldur úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. ÍBV sækir Stjörnuna heim í TM-höllina í Garðabæ klukkan 16. Stjarnan vann öruggan sex marka sigur í fyrsta leiknum í Vestmannaeyjum á fimmtudaginn, 28:22, og endurtaki hún leikinn á heimavelli...

Molakaffi: Haukur, Grétar Ari, Hannes, Elvar, Tumi Steinn, Lekić

Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir pólska meistaraliðið Łomża Vive Kielce þegar það vann MKS Zagłębie Lubin með átta marka mun á útivelli, 32:24, í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Þetta var 24. sigur Łomża Vive Kielce í...

Mörðu sigur í fyrstu viðureign

ÍR marði FH, 28:27, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í umspili um sæti í Olísdeild kvenna í kvöld en leikið var í Austurbergi. FH átti þess kost að jafna metin undir lokin en tókst óhönduglega til með síðustu...

HK fór vel af stað

HK vann öruggan sigur á Gróttu í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum umspils um sæti í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímbili, 31:21. Leikið var í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Liðin mætast á nýjan leik í Kórnum á sunndagskvöldið og vinni...
- Auglýsing-

Skrifaði undir þriggja ára samning við FH

Ragnhildur Edda Þórðardóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleikdeild FH. Hún kom að láni til FH frá Val í janúar en hefur nú ákveðið að skjóta rótum í Kaplakrika. Ragnhildur Edda leikur í vinstra horni og skoraði 42...

Leikjadagskrá undanúrslita – fyrsti leikur á sunnudaginn

Hafist verður handa við að leika í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik á sunnudaginn. Haukar og ÍBV mætast á Ásvöllum klukkan 17 á sunnudag. Daginn eftir verður fyrsta viðureign Vals og Selfoss í Origohöllinni klukkan 19.30. Vinna þarf þrjá leiki...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19298 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -