- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Moustafa heldur ótrauður áfram

Ekkert kemur í veg fyrir að hinn umdeildi forseti Alþjóða handknattleikssambandsins, Egyptinn Hassan Moustafa, verði endurkjörinn forseti á þingi Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, í Tyrklandi í nóvember. Héðan af kemur vart mótframboð þar sem framboðsfrestur er útrunninn. Moustafa var fyrst kjörinn...

Molakaffi: Lilja, Elín, Sigrún, Emilía, Ómar, Viktor, Hákon, Lauge

Lilja Ágústsdóttir er fjórða á lista yfir markahæstu leikmenn B-hluta Evrópumótsins í handknattleik kvenna 17 ára og yngri í Litáen. Lilja hefur skoraði 25 mörk og er fjórum mörkum á eftir Irmak Akbingol frá Tyrklandi sem er markahæst. Elín...

Arnór er á fljúgandi siglingu með ungmennalið Dana

Arnór Atlason, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, hefur fengið fljúgandi viðbragð með danska landsliðið á Evrópumóti 19 ára landsliða karla í Króatíu. Arnór tók við þjálfun danska U19 ára landsliðsins fyrir rúmu ári og er nú í sínu fyrsta stóra...

U17: Tilbúnar að vaða eld og brennistein

„Það er ljóst að Spánarleikurinn verður gríðarlega erfiður. Spænska liðið hefur verið jafnbesta liðið á mótinu og unnið alla sína leiki á sannfærandi hátt,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari U17 ára landsliðs kvenna í handknattleik við handbolta.is í dag. Ágúst...
- Auglýsing-

U19: Sigur sem skiptir okkur öllu máli

Hljóðið var léttara í Heimi Ríkarðssyni þjálfara U19 ára landsliðsins í handknattleik karla í dag en í gær þegar handbolti.is sló á þráðinn til Heimis eftir 13 marka sigur íslenska landsliðsins, 30:17, á ítalska landsliðinu í annarri umferð riðlakeppni...

U19: Ítalir voru kafsigldir í Varazdin

U19 ára landsliðið í handknattleik karla er komið á blað á Evrópumótinu í Króatíu eftir 13 marka stórsigur á Ítalíu, 30:17, í annarri umferð A-riðils keppninnar í dag en leikið var í bænum Varazdin. Eins og úrslitin gefa til...

U19: Lagt á ráðin fyrir Ítalíuleikinn

Eftir tap fyrir Slóveníu í upphafsleiknum á Evrópumeistaramóti 19 ára landsliða í Króatíu liggja leikmenn íslenska landsliðsins og þjálfarar undir feldi þar sem lagt er á ráðin fyrir viðureignina í dag gegn Ítölum. Ítalir komu Serbum í opna skjöldu...

Dregið hefur verið í riðla fyrir HM kvenna á Spáni

Í gærkvöld var dregið í riðla 25. heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik sem fram fer á Spáni frá 2. til 19. desember. Dregið var í átta riðla með fjórum í hverjum og einum. Þórir Hergeirsson og leikmenn hans drógust í...
- Auglýsing-

U17: Myndasyrpa – frídagur

U17 ára landslið kvenna lauk keppni í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins í gær með jafntefli við Pólverja, 23:23. Hafnaði íslenska liðið þar með í öðru sæti með sjö stig eftir fjóra leiki í keppninni, eins og Pólland sem hirti efsta...

Molakaffi: Bjarki Már, stórsigur hjá Arnóri, Dmitrieva, dómarar á EM

Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo er liðið gerði jafntefli við N-Lübbecke, 25:25, í fyrsta æfingaleik liðsins í fyrradag. Keppni hefst í þýsku 1. deildinni í byrjun september og verða liðsmenn N-Lübbecke nýliðar í deildinni en liðið...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18210 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -