- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Valgeir, Vængir, þjálfaramál Kórdrengja, Tomori, annir hjá Axel

Valgeir Gunnlaugsson hefur gengið til liðs við Vængi Júpiters í Grill66-deildinni. Valgeir lék á síðasta ári með Kríu. Hann er annar fyrrverandi leikmaður Kríu sem skiptir yfir í raðir Vænganna á skömmum tíma.  Handknattleiksmenn hafa sogast að Vængjum síðustu...

Mega leika með tveimur liðum í sömu bikarkeppninni

Þeir leikmenn sem tóku þátt í leikjum í 32-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik á síðasta keppnistímabili og skiptu um félag í sumar verða gjaldgengir með sínu nýja liði þegar þráðurinn verður tekinn í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarnum...

Var kippt niður á jörðina

Sveini Jóhannssyni og samherjum í SönderjyskE var kippt niður á jörðina í kvöld. Eftir magnaðan sigur á Danmerkurmeisturum Aalborg Håndbold í síðustu viku þá máttu Sveinn og félagar bíta í súra eplið í kvöld er þeir töpuðu fyrir Lemvig-Thyborøn...

Landsliðskona HK úr leik um óákveðinn tíma

Sigríður Hauksdóttir, landsliðskona í handknattleik, tekur ekki þátt í fyrstu leikjum HK á keppnistímabilinu vegna þrálátra meiðsli í öxl sem ekki hefur tekist að vinna bug á. Sigríður hefur ekkert tekið þátt í leikjum HK á undirbúningstímabilinu. „Öxlin hefur verið...
- Auglýsing-

Selfoss leikur í tvígang í Koprivnice um aðra helgi

Selfoss leikur báðar viðureignir sínar við tékkneska liðið KH ISMM Koprivnice í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla ytra um aðra helgi, 18. og 19. september. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfossliðsins, staðfesti þetta í samtali við handbolta.is í dag....

Frábært að vera kominn í þessa stöðu

„Það er frábært að vera kominn í þá stöðu að fá tækifæri til þess að máta sig við lið eins og Lemgo. Það er nauðsynlegt og gott fyrir okkur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, í samtali við...

Valsmenn mæta Bjarka Má og félögum

Íslandsmeistarar Vals mæta Bjarka Má Elíssyni og samherjum í þýska bikarmeistaraliðinu Lemgo í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla. Dregið var í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vínarborg í morgun. Fyrri leikurinn verður á heimavelli Vals þriðjudaginn 21. september...

Verður hugsanlega frá keppni fram á nýtt ár

Líkur eru á að Oddur Gretarsson, landsliðsmaður og hornamaður þýska liðsins Balingen-Weilstetten, leiki ekki handknattleik fyrr en komið verður inn á næsta ár. Oddur fór í aðgerð í lok júní vegna brjóskeyðingar í hné. „Um var að ræða fremur litla...
- Auglýsing-

Myndskeið: Elín Jóna með eina af markvörslum umferðinnar

Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir hefur staðið sig afar vel með liðinu sínu Ringköbing í tveimur fyrstu leikjum nýliðanna í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna það sem af er keppnistímabilsins. Elín Jóna er með um 33% hlutfallsmarkvörslu í leikjunum tveimur....

Molakaffi: Hafsteinn Óli, Ágúst Ingi, Axel, Svan, Prades

Afturelding hefur lánað handknattleiksmanninn Hafstein Óla Berg Ramos Rocha til HK frá og með 3. september til 1. júní á næsta ári eftir því sem fram kemur á félagaskiptasíðu HSÍ. Hafsteinn kom til Aftureldingar sumarið 2020 frá Fjölni.Ágúst Ingi...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18748 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -