- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bikarmeistari í Póllandi

Sigvaldi Björn Guðjónsson varð í gær pólskur bikarmeistari í handknattleik þegar lið hans, Łomża Vive Kielce vann Azoty SPR Tarnów með 22 marka mun í úrslitaleik, 42:20. Yfirburðir Łomża Vive Kielce voru miklir eins og tölurnar gefa til kynna....

Dagskráin: Úrslitakeppni með öðru sniði hefst

Átta liða úrslit úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik hefjast í kvöld með tveimur leikjum sem fram fara í Vestmanneyjum og Mosfellbæ. Síðari leikirnir tveir í fyrri umferð átta liða úrslita verða annað kvöld. Úrslitakeppni í Olísdeildar karla verður með öðru...

Molakaffi: Birgir og Katrín best, Stefán, Soffía, Daníel, Katrín Anna og fleiri, Odense og Sostaric

Birgir Steinn Jónsson og Katrín Helga Sigurbergsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokks karla og kvenna hjá Gróttu á keppnistímabilinu á lokahófi meistaraflokka félagsins sem haldið var á föstudaginn. Stefán Huldar Stefánsson og Soffía Steingrímsdóttir voru valin mikilvægustu leikmennirnir.  Efnilegust voru...

Dómaranefnd IHF í uppnámi – einræði sagt ríkja

Dómaranefnd Alþjóða handknattleikssambandsins er vart til nema að nafninu til um þessar mundir eftir að fjórir af fimm nefndarmönnum hafa sagt sig frá störfum. Snemma í síðustu viku hætti formaðurinn, Ramon Gallego. Í kjölfarið hætti Tono Huelin og um...
- Auglýsing-

Slæmt tap hjá Oddi og samherjum

Oddur Gretarsson og félagar töpuðu mikilvægum leik og þar af leiðandi tveimur stigum er þeir urðu að játa sig sigraða, 27:22, fyrir Ludwigshafen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Þar með munar aðeins einu stigi á liðunum...

Fyrsti leikur á Akureyri á miðvikudaginn

Úrslitarimma deildarmeistara KA/Þórs og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna hefst á miðvikudaginn þegar liðin mætast í KA-heimilinu klukkan 18. Vinna þarf tvo leiki til þess að verða Íslandsmeistari en úrslitakeppnin var stytt að þessu sinni vegna veirufaraldursins sem...

„Þetta var engan veginn ásættanlegt“

„Því miður þá voru þetta einstaklingar í Víkingi sem mættu liðsmönnum Kríu. Við vorum undir í öllum þáttum leiksins og verðum virkilega að skoða hvernig við undirbúum okkur og mætum til leiks því þetta var engan veginn ásættanlegt,“ sagði...

Tekur ekki þátt í fleiri leikjum

Ólafur Gústafsson verður ekki með KA-liðinu í leikjum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik sem hefst í vikunni. KA mætir Val og verður fyrsti leikur liðanna í KA-heimilinu á þriðjudaginn. Ólafur er meiddur á hné og er á leið í speglun...
- Auglýsing-

Molakaffi: Aðalsteinn, Ómar, Viggó, Arnór, Donni

Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten standa vel að vígi í undanúrslitum um svissneska meistaratitilinn í handknattleik eftir annan sigur á Kriens í gær, 29:22, á útivelli. Þriðji leikur liðanna verður í Schaffhausen á miðvikudaginn.Ómar Ingi Magnússon skoraði...

Myndasyrpur: Rafmögnuð spenna í KA-heimilinu

Gríðarleg spenna var á lokasekúndum venjulegs leiktíma og aftur í lok framlengingar í KA-heimilinu í dag þegar KA/Þór vann ÍBV, 28:27, í oddaleik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar kvenna. ÍBV fékk aukakast á síðustu sekúndum jafnt í lok hefðbundins leiktíma...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18156 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -