- Auglýsing -
Gríðarleg spenna var á lokasekúndum venjulegs leiktíma og aftur í lok framlengingar í KA-heimilinu í dag þegar KA/Þór vann ÍBV, 28:27, í oddaleik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar kvenna. ÍBV fékk aukakast á síðustu sekúndum jafnt í lok hefðbundins leiktíma og aftur í lok framlengingar.
Í fyrra skiptið buldi skot Ástu Bjartar Júlíusdóttur í þverslá KA-marksins. Í síðara sinnið tókst varnarmönnum KA/Þórs að verja skot Hrafnhildar Hönnur Þrastardóttur. Skapti Hallgrímsson, ritstjóri akureyri.net, náði myndasyrpu af báðum aukaköstunum eins og sjá má hér fyrir neðan.
Síðara aukakastið í lok framlengingar:
- Auglýsing -