- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Pattstaða í Evrópuleikjum

„Það er lítið að frétta af Salerno leikjunum. Boltinn er ennþá hjá ítalska liðinu og spurning hvort það sé til í að koma hingað til Íslands til að spila báða leikina,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari kvennaliðs KA/Þórs, spurður...

Smit í herbúðum Lemgo

Þýska handknattleiksliðið Lemgo, sem Bjarki Már Elísson leikur með, greinir frá í tilkynningu að við venjubundið eftirlit með leikmönnum og starfsmönnum félagsins á föstudaginn hafi einn leikmaður liðsins reynst jákvæður og þar af leiðandi smitaður af kórónuveirunni. Af þessum sökum...

Fimmta breytingin gerð

Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum í handknattleik fyrir leikinn gegn Litháum. Hann er kominn í sóttkví eftir að kórónuveirusmit greindist hjá liði hans, Vive Kielce í Póllandi. Í stað Sigvalda Björns kemur Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer...

Afföll hjá Litháum

„Við erum í annarri stöðu nú en þegar við mættum íslenska landsliðinu fyrir rúmum tveimur árum en á móti kemur að það hafa líka orðið breytingar á íslenska landsliðinu eins og okkar á síðustu stundu. Við verðum að sjá...
- Auglýsing-

Alveg eins líklegt að ekki verði spilað fyrir áramót

Sebastian Alexandersson, þjálfari karlaliðs Fram, segir það hafa gengið vel til þessa að halda leikmönnum við efnið. Hinsvegar sé stöðvun æfinga nú nokkur vonbrigði sem færi menn aftur til baka. Innanhússæfingarnar, þótt í skamman tíma hafi verið, hafði haft...

Heilt lið komið í einangrun eða sóttkví

Allir leikmenn þýska 1. deildarliðsins Leipzig eru ýmist komnir í sóttkví eða eingangrun eftir því sem félagið greindi frá í gærkvöldi. Um miðja vikuna reyndist þjálfari liðsins, Andre Haber vera smitaður og fór þar af leiðandi ekki með liðinu...

Molakaffi: Hörður Fannar, Finnur Ingi og Heidi Löke

Hörður Fannar Sigþórsson skoraði tvö mörk fyrir KÍF frá Kollafirði þegar liðið gerði jafntefli, 35:35, við Team Klaksvik í Klaksvík í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Hörður og samherjar voru fimm mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 20:15....

Ellefu marka skellur

Landsliðsmaðurinn Óskar Ólafsson og hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg feng skell í kvöld með liði sínu Drammen þegar það fékk meistara Elverum í heimsókn. Drammen-liðið átti aldrei möguleika gegn vel skipulögðu og reyndu liði meistaranna sem vann með...
- Auglýsing-

Er gríðarlega stoltur

„Ég var gríðarlega stoltur þegar að það var haft samband við mig og tjáð að það væri verið að kalla mig inn í landsliðshópinn. Þvílíkur heiður að fá tækifæri til að vera kominn á þann stað,“ sagði Hákon...

Baráttan við veiruna skiptir öllu máli

Kristinn Björgúlfsson, þjálfari karlaliðs ÍR, segir að vel hafi gengið að halda leikmönnum við efnið síðustu vikur þótt nauðsynlegt hafi verið að brjóta upp munstrið vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast. ÍR-ingar hafi m.a. lagt aukna áherslu á að...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18173 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -