- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Öruggur sigur hjá íslensku landsliðskonunum

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe fór frábærlega af stað í undanúrslitum um þýska meistaratitilinn í handknattleik í dag með sex marka sigri á Thüringer HC, 31:25, á heimavelli. Blomberg-Lippe var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda, m.a. 13:10, þegar fyrri...

Stórleikur Söru Sifjar – Oddaviðureign í Eyjum á þriðjudag

Haukar tryggðu sér oddaleik á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna með sigri á ÍBV, 26:23, í fjórðu viðureign liðanna í Kuehne+Nagel á Ásvöllum í dag. Hvort lið hefur unnið tvo leiki. Sæti í úrslitum Íslandsmótsins verður...

Aðalsteinn Örn heldur tryggð við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til næstu tveggja ára. Aðalsteinn hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og átti frábært síðasta tímabil þar sem hann var valinn handboltamaður ársins hjá Fjölni árið 2025....

Elvar valinn bestur hjá Ribe-Esbjerg

Elvar Ásgeirsson var valinn besti leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Ribe-Esbjerg á leiktíðinni sem er að renna sitt skeið á enda. Hann tók við viðurkenningu í dag fyrir síðasta leik tímabilsins sem vildi svo til að var á heimavelli gegn Nordsjælland. Elvar...
- Auglýsing-

ØIF Arendal þakkar Degi Gautasyni

Norska úrvalsdeildarliðið ØIF Arendal þakkar Degi Gautasyni sérstaklega fyrir framlag sitt til félagsins þegar það gerir upp leiktíðina. Dagur lék með ØIF Arendal fyrri hluta þessa tímabils en einnig frá sumrinu 2023 fram í janúar 2025 er hann gekk...

Egyptalandsfarar valdir á mánudaginn

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik tilkynnir á mánudaginn hvaða leikmenn hann hefur valið til þess að taka þátt í tveimur vináttuleikjum við Afríkumeistara Egyptalands í Kaíró um miðjan næsta mánuð. Uppfært sunnudaginn 26. apríl: HSÍ tilkynnti sólarhrings seinkun...

Fjórði háspennuleikurinn á Ásvöllum í dag?

Haukar og ÍBV mætast í fjórða sinn í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum klukkan 15. ÍBV er í vænlegri stöðu um þessar mundir með tvo vinninga en Haukar einn. Vinna þarf þrjá leiki til þess...

Mættur á ný til leiks í Katar

Veselin Vujovic hefur á ný tekið við þjálfun karlalandsliðs Katar í handknattleik. Hann var þjálfari liðsins 2024 og 2025 en var leystur frá störfum í kjölfar ófullnægjandi árangurs að mati stjórnenda handknattleiksíþróttarinnar í Katar. Kallað var á ný á...
- Auglýsing-

Frammistaðan ekki talin samræmi við launin

Forráðamenn Pick Szeged töldu sænska handknattleiksmanninn Jim Gottfridsson vart hafa unnið fyrir launum sínum. Þess vegna kölluðu þeir hann á sinn fund fyrir nokkrum vikum þar sem þeir spurðu hvenær frammistaða hans yrði í samræmi við þau laun sem...

Molakaffi: Janus, Reynir, Arnar, Orri, Stiven, Þorsteinn

Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk í átta marka sigri Pick Szeged á ETO University Handball Team, 37: 29, í 23. umferð ungversku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Györi. Pick Szeged er sem fyrr í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19284 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -