- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Áfram er mikið tap á rekstri HSÍ – stjórn hefur „verulegar áhyggjur“

Handknattleikssamband Íslands var rekið með 22 milljóna króna tapi árið 2025 og hefur þar með verið rekið með á annað hundrað milljóna kr. tapi síðustu þrjú ár. Í greinargerð með ársreikningi HSÍ 2025 segir að „skuldir sambandsins nema í...

Miðasala er hafin á úrslitaleik Vals og FH

Miðasala hófst klukkan 12 á hádegi í dag á oddaleik Vals og FH á fimmtudaginn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Úrslitaleikurinn fer fram í N1-höll Vals á Hlíðarenda og hefst klukkan 19.30 á fimmtudagskvöld. Uppfært: Aðgöngumiðar seldust upp á skömmum tíma. Sjá...

Myndskeið: Dramatíkin í Kaplakrika

Í tvíframlengdum háspennuleik FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla réðust úrslitin á dramatíkskum síðustu sekúndum. Fyrir mörgum virtist Valur hafa jafnað metin þegar 10 sekúndur voru til leiksloka þegar Daníel Montoro kom boltanum á ævintýralegan hátt fram...

Myndasyrpa: FH – Valur, 37:36

Úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld þegar Valur og FH leiða saman kappa sína í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 19.30. FH jafnaði metin, 2:2, í vinningum talið með naumum sigri á Val, 37:36, í Kaplakrika í...
- Auglýsing-

Hreinn úrslitaleikur framundan – Daníel Freyr hetja á ögurstundu

Hreinn úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld í N1-höllinni á Hlíðarenda á milli FH og Vals. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.FH vann hreint ævintýralegan sigur á Val í Kaplakrika í kvöld í tvíframlengdum leik, 37:36....

Sjö mörk hjá Donna þegar Skanderborg gulltryggði sæti í undanúrslitum

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF gulltryggðu sæti í undanúrslitum úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld með öruggum sigri á Bjerringbro/Silkeborg, 35:28, í næst síðustu umferð B-riðils átta liða úrslita. Leikið var á heimavelli Skanderborg-liðsins. Donni...

Natasja og Ísak Logi best hjá Stjörnunni

Lokahóf meistaraflokka Stjörnunnar fór fram í Hekluhöllinni þann 30. apríl. Leikmenn voru verðlaunaðir og um leið þakkað fyrir afstaðið tímabil. Meistaraflokkur kvenna:Besti leikmaður: Natasja Hammer.Efnilegasti leikmaðurinn: Bryndís Hulda Ómarsdóttir. Meistaraflokkur karla:Besti leikmaður: Ísak Logi Einarsson.Efnilegasti leikmaðurinn: Matthías Dagur Þorsteinsson. Veislugestir völdu einnig þann...

Molakaffi: Einar, Sveinn

Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark, gaf eina stoðsendingu og varði tvö skot í vörninni þegar lið hans, HSV Hamburg, vann Stuttgart, 31:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Sporthalle Hamburg. HSV Hamburg situr...
- Auglýsing-

Oddaleikur í undanúrslitum eftir naumt tap

Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur mætir Thüringer HC í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni þýsku 1. deildarinnar í handknattleik kvenna. Blomberg-Lippe tapaði með minnsta mun, 29:28, í Salza-Halle, heimavelli Thüringer HC í kvöld....

Birgir Steinn og samherjar eru fallnir úr leik

Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof féllu í dag úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þeir töpuðu með þriggja marka mun, 37:34, fyrir Malmö í Baltiska Hallen í Malmö. IK Sävehof vann ekki leik...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19361 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -