- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hreinn úrslitaleikur framundan – Daníel Freyr hetja á ögurstundu

- Auglýsing -

Hreinn úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld í N1-höllinni á Hlíðarenda á milli FH og Vals. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.

FH vann hreint ævintýralegan sigur á Val í Kaplakrika í kvöld í tvíframlengdum leik, 37: 36. Daníel Freyr Andrésson markvörður FH var hetja liðsins þegar hann varði vítakast Arnórs Snæs Óskarssonar tíu sekúndum fyrir lok annarrar framlengingar. FH-ingar náðu frákastinu og leiktíminn rann út. Frábær tvíframlengdur leikur í troðfullum Kaplakrika var að baki.
Staðan var, 34: 34, þegar síðari framlengingin hófst.


FH byrjaði vel og skoraði fyrstu fimm af sex mörkum leiksins. Valsmenn létu slæma byrjun ekki slá sig út af laginu. Þeir unnu sig inn í leikinn en voru samt sem áður skrefi á eftir til loka hálfleiksins. FH var með fjögurra marka forskot í hálfleik, 19:15.

Valur bætti vörn sína verulega í síðari hálfleik en var skrefi á eftir þangað til á allra síðustu mínútunum. FH var þremur mörkum yfir liðlega fjórum mínútum fyrir leikslok, 29:26. Valur skoraði þrjú síðustu mörkin og brenndi auk þess af vítakasti og tveimur opnum færum. Arnór Snær Óskarsson jafnaði metin fyrir Val sex sekúndum fyrir leikslok, 29:29.

FH náði tveggja marka forskoti í fyrri framlengingunni, 34:32, en Valur skoraði tvö mörk á síðustu 30 sekúndunum áður en leiktíminn var úti og vann þar með aðra framlengingu. Allan Norðberg jafnaði metin fyrir Val eftir að FH-ingum tókst óhöndulega upp í síðustu sókninni, 34:34.


Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 11, Kristófer Máni Jónasson 7/4, Garðar Ingi Sindrason 5, Símon Michael Guðjónsson 5, Birkir Benediktsson 2, Gunnar Kári Bragason 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Birgir Már Birgisson 1, Einar Örn Sindrason 1, Jakob Martin Ásgeirsson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 12/1, 35,3% – Jón Þórarinn Þorsteinsson 6/1, 30%.

Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 15/9, Bjarni í Selvindi 7, Gunnar Róbertsson 5, Þorgils Jón Svölu Baldursson 3, Allan Norðberg 2, Andri Finnsson 1, Dagur Leó Fannarsson 1, Róbert Aron Hostert 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 12, 26,7%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -