- Auglýsing -
Úrslitaleikur verður um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla á fimmtudagskvöld þegar Valur og FH leiða saman kappa sína í N1-höll Vals á Hlíðarenda klukkan 19.30.
FH jafnaði metin, 2:2, í vinningum talið með naumum sigri á Val, 37:36, í Kaplakrika í gær. Viðureignin var tvíframlengd og fengust ekki lyktir fyrr en Daníel Freyr Andrésson markvörður FH varði vítakast 10 sekúndum áður en leiktími síðari framlengingar rann út.
Jói Long ljósmyndari var í Kaplakrika í gærkvöld endurnærður eftir nokkurra daga dvöl í suðurhöfum. Jói sendi handbolta.is nokkrar myndir frá leiknum sem birtast hér fyrir neðan.
-Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
- Auglýsing -






















