- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Oddaleikur í undanúrslitum eftir naumt tap

- Auglýsing -

Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur mætir Thüringer HC í oddaleik í undanúrslitum úrslitakeppni þýsku 1. deildarinnar í handknattleik kvenna. Blomberg-Lippe tapaði með minnsta mun, 29:28, í Salza-Halle, heimavelli Thüringer HC í kvöld. Oddaleikurinn fer fram á heimavelli Blomberg-Lippe á laugardaginn.

„Þetta var klaufalegt hjá okkur eftir dýr mistök síðustu mínúturnar. Auk þess varði markvörður þeirra, Laura Kuske, vel í seinni hálfleik. Til viðbótar spilaði Thüringer HC sjö á sex allan leikinn,“ sagði Díana Dögg við handbolta.is og bætti við: „ Við klárum þær á heimavelli eftir viku!“

Blomberg-Lippe var marki yfir í hálfleik, 15:14.


Andrea skoraði fimm mörk, gaf eina stoðsendingu, var með eitt skapað færi, varði tvö skot í vörninni og var einu sinni vikið af leikvelli.

Díana Dögg skoraði tvö mörk, gaf sex stoðsendingar, var með eitt skapað færi, náði tveimur fráköstum og vann andstæðinginn einu sinni af leikvelli.

Elín Rósa skoraði fjögur mörk, gaf fimm stoðsendingar, varði eitt skapað færi, vann eitt vítakast og var rekin af leikvelli.

Borussia Dortmund leikur til úrslita um þýska meistaratitilinn eftir tvo sigurleiki gegn HSG Bensheim/Auerbach.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -