Lokahóf meistaraflokka Stjörnunnar fór fram í Hekluhöllinni þann 30. apríl.
Leikmenn voru verðlaunaðir og um leið þakkað fyrir afstaðið tímabil.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaður: Natasja Hammer.
Efnilegasti leikmaðurinn: Bryndís Hulda Ómarsdóttir.
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaður: Ísak Logi Einarsson.
Efnilegasti leikmaðurinn: Matthías Dagur Þorsteinsson.
Veislugestir völdu einnig þann leikmann sem hlaut Gunnubikarinn. Að þessu sinni féll Gunnubikarinn Sigurði Dan Óskarssyni í skaut.
Sjálfboðaliði ársins var valin Jóhanna Íris Guðmundsdóttir.
Einnig voru veittar viðurkenningar til leikmanna sem kveðja Stjörnuna eftir tímabilið:
Adam Thorstensen.
Hanna Guðrún Hauksdóttir.
Hans Jörgen Ólafsson.
Jón Ásgeir Eyjólfsson.
Rakel Dórothea Ágústsdóttir.
Rakel Guðjónsdóttir.


