Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Haukar glíma við Rúmena

Karlalið Hauka leikur við rúmenska liðið CSM Focsani 2007 í 3. umferð, 32-liða úrslita Evrópubikarkeppninnar í handknattleik. Það varð niðurstaðan þegar dregið var í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg fyrir stundu. Haukar voru í efri styrkleikaflokki.Fyrri leikurinn verður í Rúmeníu...

Annað Grikklandsævintýri hjá ÍBV – KA/Þór fékk spænskan andstæðing

Kvennalið ÍBV á fyrir dyrum aðra ferð til Grikklands til þátttöku í Evrópbikarkeppninni í handknattleik og KA/Þór leikur við spænskt félagslið í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna.ÍBV dróst í dag gegn gríska liðinu AEP Panorama. Fyrri viðureignin verður...

Haukar komast hjá ferð til Minsk – dregið í dag

Haukar verða í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í 32-liða úrslit Evrópubikarkeppni karla, 32-liða úrslit, í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg eftir klukkan eitt í dag. Þar með er alltént ljóst að Hauka sleppa við að fylgja í kjölfar FH-inga...

Mætast ÍBV og KA/Þór í 32-liða úrslitum?

Hugsanlegt er að ÍBV og KA/Þór mætist í þriðju umferð Evrópubikarkeppni kvenna, 32-liða úrslitum, þar sem liðin eru hvort í sínum flokki þegar dregið verður eftir hádegið í dag í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vínarborg. EHF gaf út...
- Auglýsing-

„Eyjahjartað sló hratt“

„Við erum náttúrlega alveg himinlifandi með þessi úrslit og þvílíkur leikur hjá okkur í gær,“ sagði Sunna Jónsdóttir, leikmaður ÍBV, við handbolta.is eftir að liðið komst í þriðju umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik. ÍBV lagði PAOK í Þessalóníku í síðari...

Molakaffi: Sigvaldi, Ágúst, Felix, Óskar, Viktor, Harpa, Andrea, dómarar, Ekberg, Duvnjak

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk þegar Vive Kielce vann MMTS Kwidzyn, 41:29, í pólsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Haukur Þrastarson var ekki í liði Kielce en hann tognaði á ökkla í leik í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld. Ágúst...

Selfoss fór upp að hlið FH

Selfoss fór upp að hlið FH á toppi Grill66-deildar kvenna í handknattleik í dag þegar liðið vann Gróttu með fjögurra marka mun, 31:27, í fjórðu umferð deildarinnar í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Selfoss var marki yfir að loknum fyrri hálfleik,...

Annar í höfn hjá Kórdrengjum

Kórdrengirnir undirstrikuðu svo sannarlega tilverurétt sinn í Grill66-deild karla í dag þegar þeir unnu annan leik sinn í deildinni á keppnistímabilinu. Kórdrengir unnu Vængi Júpiters með fjögurra marka mun, 26:22, á heimavelli sínum, íþróttahúsinu í Digranesi.Kórdrengir voru tveimur mörkum...
- Auglýsing-

Getumunurinn var verulegur

„Við áttum í bölvuðu basli. Varnarleikur Vals var það góður að það sem við héldum að myndi virka hjá okkur í sókninni gekk engan veginn upp,“ sagði Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA, daufur í bragði eftir að Valsmenn tóku...

Ekkert hik á Haukum

Gróttu tókst ekki gegn Haukum í kvöld að fylgja eftir góðri frammistöðu gegn Afureldingu fyrir viku þegar þeir náðu í eitt stig í heimsókn sinni í Mosfellsbæ. Í kvöld voru Haukar í heimsókn hjá Gróttumönnum í Hertzhöllinni. Gestirnir fóru...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 til 2019. Stofnaði handbolti.is árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 164 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
12471 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -