- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Kraftur og hraði í ÍR-ingum í nýliðaslagnum

ÍR-ingar hófu keppni í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld af miklum krafti þegar þeir sóttu Fjölnismenn heim í Egilshöllina. Þeir réðu lögum og lofum frá byrjun til enda og unnu stórsigur, 36:26, í slag nýliða deildinnar. Fjölnismenn náðu...

Eva Hrund styrkir þjálfarateymi HK

Eva Hrund Harðardóttir hefur skrifað undir samning við HK þess efnis að verða aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik næsta árið. HK leikur í Grill 66-deildinni í vetur.„Eva Hrund hefur þjálfað hjá HK undanfarin ár og erum við afar ánægð...

Ekki var leitað langt yfir skammt að eftirmanni Krumbholz

Sébastien Gardillou hefur verið ráðinn eftirmaður Olivier Krumbholz í starf landsliðsþjálfara Frakka í handknattleik kvenna. Franska handknattleikssambandið tilkynnti um ráðningu Gardillou í dag. Krumbholz lét af störfum eftir Ólympíuleikana í síðasta mánuði. Engu að síður voru upp vangaveltur að...
- Auglýsing -

Fram er klúbbur sem vill alltaf vera í fremstu röð

https://www.youtube.com/watch?v=OrreHx5ov08 „Við höfum æft vel og hópurinn litið vel út. Við erum spennt fyrir komandi tímabili," segir Rakel Dögg Bragadóttir þjálfari kvennaliðs Fram í handknattleik í samtali við handbolta.is spurð um væntanlegt keppnistímabil í handboltanum. Fram tekur á móti Stjörnunni í...

Tími uppbyggingar stendur yfir hjá Stjörnunni

https://www.youtube.com/watch?v=W_YDgOhsd88 „Ég gerði mér grein fyrir því þegar ég tók við þjálfun liðsins að breytingar stæðu fyrir dyrum. Nokkrir reynslumiklir og góðir leikmenn hættu hjá okkur. Ég tel samt að þegar við verðum búin að fá alla þá leikmenn við...

Andlát: Gunnar K. Gunnarsson

Gunn­ar K. Gunn­ars­son fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri HSÍ lést 4. sept­em­ber síðastliðinn á Heil­brigðis­stofn­un Suður­lands í Vest­manna­eyj­um, 74 ára að aldri.Gunn­ar var virk­ur í fé­lags­störf­um inn­an íþrótta­hreyf­ing­ar­inn­ar og sat í stjórn HSÍ 1980-1984 og 1987-1992 á miklum uppgangsárum handknattleiks...
- Auglýsing -

Lydía skrifaði undir nýjan samning við KA/Þór

Unglingalandsliðskonan Lydía Gunnþórsdóttir hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við KA/Þór og verður þar af leiðandi í eldlínunni með liðinu í Grill66 deildinni í vetur. Lydía, sem verður 18 ára seinna í mánuðinum, hefur þrátt fyrir ungan aldur verið...

Dagskráin: Nýliðar mætast í Egilshöllinni – Stjarnan sækir Fram heim

Áfram verður haldið að leik í Olísdeildum karla og kvenna í kvöld. Nýliðar Olísdeildar karla, Fjölnir og ÍR mætast í Fjölnishöllinni klukkan 19.Fyrsti leikur Olísdeild kvenna fór fram í gær þegar Haukar og Selfoss mættust á Ásvöllum. Í kvöld...

Molakaffi: Guðjón, Elliði, Teitur, Heiðmar, Arnar, Elvar, Wagner, Hansen

Flautað var til leiks í þýsku 1. deildinni í handknattleik karla í gær. Gummersbach, liðið sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, vann Hannover-Burgdorf með fjögurra marka mun, 32:28, á útivelli.  Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn...
- Auglýsing -

Skarphéðinn Ívar var hetja Hauka

Skarphéðinn Ívar Einarsson var hetja Hauka í fyrsta leik sínum fyrir félagið í Olísdeildinni í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Aftureldingu í hörkuleik á Ásvöllum, 27:26. Skarphéðinn Ívar, sem gekk til liðs við Hauka frá KA í sumar,...

Einar verður áfram þjálfari Fram næstu tvö ár

Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram hefur framlengt samning sinn hjá handknattleiksdeild Fram til ársins 2026. Þetta kom fram í tilkynningu handknattleiksdeildar sem send var út í kvöld meðan Framliðið barðist við FH í 1. umferð Olísdeildar á heimavelli Íslandsmeistaranna....

Haukar fóru illa með nýliðana í upphafsleiknum

Haukar fóru illa með nýliða Selfoss í upphafsleik Olísdeildar kvenna á Ásvöllum í kvöld og unnu með 12 marka mun, 32:20, eftir að hafa verið 10 mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:7. Selfyssingar sem unnu Grill 66-deildina í vor...
- Auglýsing -

FH-ingar lögðu Framara – stórleikur Daníels Freys

FH hóf titilvörnina í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld með sannfærandi sigri á Fram, 27:23, í Kaplakrika. FH-liðið var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda og var m.a. fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:10....

Ólafur úr leik næstu fjórar til sex vikur

Ólafur Gústafsson, sem gekk til liðs við FH í sumar eftir fjögurra ára veru hjá KA, leikur ekki með FH næstu vikurnar. Hann fór í speglun á hné á dögunum samkvæmt upplýsingum handbolta.is. Reikna FH-ingar með að Ólafur verði...

Guðmundur Rúnar hleypur í skarðið fyrir Viktor

Eftir tveggja ára fjarveru er Guðmundur Rúnar Guðmundsson kominn aftur inn í þjálfarateymi karlaliðs Fjölnis í handknattleik. Að þessu sinni er Guðmundur í hlutverki aðstoðarþjálfara en hann var aðalþjálfari liðsins frá 2020 til 2022. Guðmundur Rúnar kemur í stað Viktors...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -