Gunnar K. Gunnarsson fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri HSÍ lést 4. september síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum, 74 ára að aldri.
Gunnar var virkur í félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar og sat í stjórn HSÍ 1980-1984 og 1987-1992 á miklum uppgangsárum handknattleiks hér á landi. Gegndi hann m.a. embætti gjaldkera. Einnig var Gunnar um skeið framkvæmdastjóri HSÍ á 10. áratugnum. Kom hann m.a. að skiplagningu, undirbúningi og vinnu við heimsmeistaramót karla í handknattleik sem haldið var hér á landi 1995. Gunnar var í stjórn handknattleiksdeildar Þróttar um árabil.
Auk setu í stjórn og starfa fyrir HSÍ var Gunnar handknattleiksdómari og síðar eftirlitsmaður á leikjum innanlands um áratugaskeið. Hann var jafnframt eftirlitsdómari hjá Handknattleikssambandi Evrópu, EHF, frá 1993 til 2018. Gunnar var sæmdur gullmerki EHF þegar hann hætti sem eftirlitsmaður EHF fyrir sex árum. Einnig hlaut Gunnar gullmerki HSÍ og fleiri félaga og sérsambanda fyrir störf sín.
Gunnar bjó í Vestmannaeyjum frá 1995 til æviloka. Hann var framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum frá 1995 til 2014 þegar starfsævinni lauk.
Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir. Börn þeirra eru María Kristín, Gunnar Geir og Inga Lilý. Barnabörnin eru sjö.
Fram kemur á mbl.is í dag að útför Gunnars fari fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 14. september kl. 13.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
FRÉTTAVAKTIN - Handbolti.is:
- Auglýsing -
- Auglýsing -
Nýlegt á handbolti.is
- Auglýsing -