- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Alfreð og lærisveinar töpuðu í Düsseldorf

Þýska landsliðið í handknattleik karla, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, tapaði í gær fyrir landsliði Portúgals með tveggja marka mun, 32:30, í seinni vináttuleik liðanna sem fram fór í Düsseldorf í gær. Staðan var jöfn eftir fyrri hálfleik, 17:17. Þjóðverjar...

Molakaffi: Andrea, Sara, Katrín, Halldór, Hilmar, Axel, Elías, Birta, Harpa

Andrea Jacobsen og samherjar í Kristianstad töpuðu illa fyrir Önnereds á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær, 27:18. Andrea náði sér ekki vel á strik og skoraði fjögur mörk úr 12 skotum. Mestu munaði um stórleik Jenny...

Selfoss nálgaðist FH

Lið Selfoss er komið á skrið á nýjan leik í Grill66-deild kvenna í handknattleik eftir nokkurt hlé vegna þess að æfingar lágu niðri um nokkurt skeið í bænum meðan kórónuveiran herjaði þar. Selfoss tók á móti ungmennaliði ÍBV í...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: KA/Þór – Afturelding

Afturelding sótti KA/Þór heim í Olísdeild kvenna í handknattleik í gær. KA/Þór hafði betur gegn nýliðunum, 32:26, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik. Egill Bjarni Friðjónsson var að vanda í KA-heimilinu og sendi handbolta.is...

Lífsnauðsynlegur sigur

„Sigurinn var lífsnauðsynlegur fyrir okkur í ljósi þeirrar stöðu sem við vorum í,“ sagði Sigurður Bragason þjálfari kvennaliðs ÍBV ákveðinn er handbolti.is hitti hann stuttlega að máli á Ásvöllum í dag eftir öruggan sigur ÍBV á Haukum, 31:24, í...

Stórsigur ÍBV á Ásvöllum – þriðja tap Hauka í röð

Eftir tvo tapleiki í röð vann ÍBV stórsigur á Haukum, 31:24, á Ásvöllum í lokaleik 6. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik. ÍBV var mikið sterkara frá upphafi til enda. Haukar töpuðu þar sínum þriðja leik í röð en liðið...
- Auglýsing -

Erlingur hefur EM undirbúning á móti í Noregi

Lærisveinar Erlings Richardssonar í hollenska karlalandsliðinu töpuðu fyrir Noregi með 11 marka mun á fjögurra liða móti í Þrándheimi í Noregi í gær, 40:29, eftir að hafa verið sjö mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 20:13. Hollenska landsliðið er með...

Vildi ólm fara aftur inn á völlinn

Margrét Ýr Björnsdóttir markvörður HK átti stórleik gegn Stjörnunni í viðureign liðanna í 6. umferð Olísdeildarinnar í handknattleik í gær, leik sem Margrét Ýr og samherjar unnu 34:28. Hún varði 13 skot, þar af tvö vítaköst. Samtals gerði þetta...

Dagskrá: Eyjakonur sækja Hauka heim – áfram leikið í Grill66-deild kvenna

Sjöttu umferð Olísdeildar kvenna lýkur í dag með viðureign Hauka og ÍBV á Ásvöllum klukkan 15. Til stóð að leikurinn færi fram í gær en var frestað vegna veðurs. Haukar sitja í fjórða sæti með fimm stig að loknum fimm...
- Auglýsing -

Molakaffi: Elín, Steinunn, Moustafa, Hákon, Arnar, Mappes

Elín Jóna Þorsteinsdóttir og félagar í Ringköbing Håndbold töpuðu fyrir Århus United í Árósum í gær, 33:25. Ringköbing er í 13. og næst neðsta sæti með sex stig. Afar hörð keppni er á meðal sex liða í áttunda til...

U18: Grátlega naumt tap

Piltarnir í U18 ára landsliðinu biðu grátlega naumt tap í kvöld fyrir Ungverjum í lokaleik sínum á alþjóðlega handknattleiksmótinu í París, 33:32. Ungverjar skoruðu sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok en áður hafði Birkir Snær Steinsson jafnað metin þegar hálf...

Meistararnir sterkari – komnir upp að hlið Framara

Íslands- og bikarmeistarar KA/Þórs eru komnir upp að hlið Fram í annað til þriðja sæti deildarinnar eftir að hafa unnið Aftureldingu með sex marka mun, 32:26, í KA-heimilinu í dag. KA/Þór er komið með níu stig eftir sex leiki...
- Auglýsing -

Valur vann toppslaginn – situr ósigraður í efsta sæti

Valur tyllti sér á topp Olísdeildar kvenna með naumum sigri á Fram, 25:24, í sannkölluðum toppslag tveggja efstu liðanna í Framhúsinu í dag. Leikurinn var jafn, hraður og bráðskemmtilegur þótt niðurstaðan hafi orðið mis ánægjuleg fyrir leikmenn liðanna....

U20: Níu marka tap í Köge – myndskeið

U20 ára landslið Íslands í handknattleik karla tapaði öðru sinni á jafnmörgum dögum fyrir Dönum í vináttuleik í Köge í Danmörku í dag, 37:28. Danska liðið, sem Arnór Atlason þjálfara, var sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:12.Eins...

Valgerður Ýr og Margrét Ýr fóru á kostum í sigri HK

HK gerði sér lítið fyrir og lagði Stjörnuna með sex marka mun, 34:28, í Olísdeild kvenna í handknattleik í Kórnum í dag. Þar með hefur HK-liðið fengið fimm stig úr síðustu sex leikjum í deildinni og greinilega á mikilli...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -