- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-kvenna

- Auglýsing -

Dagskráin: Hylla Mörthu fyrir fyrsta heimaleik

Annarri umferð Olísdeildar lýkur í dag með uppgjöri KA/Þórs og Hauka í KA-heimilinu. Flautað verður til leiks klukkan 16 og mun veður ekki hafa nein áhrif á eftir því sem næst verður komist. Leikmenn Hauka eru á leiðinni norður...

Grill66-deild kvenna: Byrjað með þremur leikjum – úrslit og markaskorarar

ÍR, Grótta og Víkingur unnu leiki sína í 1. umferð Grill66-deildar kvenna sem hófst í kvöld. Upphafsleikur deildarinnar var í Safamýri þar sem Víkingar hafa hreiðrað um sig eftir flutning Framara í Grafarholtið. Víkingar virtust kunna vel við sig...

Spá fyrir Grill66-deild kvenna: Fer Afturelding rakleitt upp aftur?

Útlit er fyrir hörkuspennandi keppni á milli fimm liða í Grill66-deild kvenna á keppnistímabilinu sem er að hefjast. Alltént er það niðurstaða af spá vina og velunnara handbolta.is sem gerð var á dögunum. Niðurstaðan er birt hér fyrir neðan...
- Auglýsing -

Tinna stendur á milli stanganna hjá Gróttu

Tinna Húnbjörg Einarsdóttir, markvörður, hefur gengið til liðs við Gróttu í Grill66-deildinni. Hún er 28 ára gömul og er þrautreynd í markinu. Síðustu tvö ár hefur Tinna leikið með Stjörnunni en var þar áður hjá Haukum. Tinnu er ætlað að...

Molakaffi: Donni, Teitur Örn Arnór Þór, Ýmir Örn, Viggó, Eydís, Gjekstad

Kristján Örn Kristjánsson, Donni,  átti sannkallaðan stórleik í gærkvöld þegar hann skoraði 10 mörk og var markahæstur leikmanna PAUC þegar þeir unnu Istres, 35:26, á heimavelli í upphafsleik annarrar umferðar frönsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þetta var í fyrsta...

Molakaffi: Teitur Örn, Hildur María, Böðvar Páll, Landin, landslið Úkraínu, Simic

Teitur Örn Einarsson er í liði 3. umferðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Teitur Örn skoraði fimm mörk úr fimm skotum þegar Flensburg vann Hannover-Burgdorf á útivelli á laugardaginn, 35:25. Þetta er í fyrsta sinn sem Selfyssingurinn er...
- Auglýsing -

Myndir: Fjöldi fólks kom á minningarleik Ása

Talið er að á sjöunda hundrað manns hafi komið saman í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í gærkvöld á minningarleik um Ásmund Einarsson fyrrverandi formann handknattleiksdeildar Gróttu sem lést um aldur fram síðla í júlí. Kvennalið Gróttu og U18 ára landslið Íslands...

Gunnar fer með Gróttu upp um deild

Eftir nokkurra ára veru í Grill66-deild kvenna þá mun Grótta taka sæti í Olísdeildinni að ári liðnu gangi spá þjálfara og forráðamanna liða Grill66-deildarinnar eftir. Í henni er Gróttu, undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, spáð sigri í deildinni sem verður...

ÍR bætir við sig leikmönnum og Anna Dögg framlengir

ÍR hefur fengið til sín Berglindi Björnsdóttur og Erlu Maríu Magnúsdóttur frá Fjölni/Fylki áður en átökin hefjst í Grill66-deild kvenna síðar í þessum mánuði. Berglind er 22 ára miðjumaður sem getur leyst allar stöður fyrir utan. Hún er kvikur og...
- Auglýsing -

Friðrik Hólm kominn til liðs við ÍR

Eyjamaðurinn Friðrik Hólm Jónsson hefur fengið félagaskipti frá ÍBV til nýliða ÍR í Olísdeild karla. Þetta kemur fram í félagaskiptaskrá á vef HSÍ. Friðrik Hólm er vinstri hornamaður og hefur leikið með ÍBV síðustu árin og var m.a. í...

Molakaffi: Hafþór Már, Kolbrún Arna, Novak

Hafþór Már Vignisson og nýir samherjar hans í Empor Rostock unnu Nordhorn, 22:20, á heimavelli í gærkvöld og tryggðu sér þar með sæti í 2. umferð þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. Um var að ræða fyrsta opinbera kappleik Akureyringsins fyrir...

Sigríður Unnur ráðin til Gróttu

Sigríður Unnur Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Gróttu sem leikur i Grill66-deild kvenna á næsta keppnistímabili. Sigríður verður Gunnari Gunnarssyni til halds og trausts en Gunnar tók við þjálfun Gróttuliðsins í sumar. Sigríður kemur frá Val þar...
- Auglýsing -

Minningarleikur Ásmundar

Ásmundur Einarsson fyrrverandi formaður handknattleiksdeildar Gróttu lést síðla í júlí. Hans verður minnst með leik á milli Gróttu og U18 ára landsliðs kvenna í Hertzhöllinni, íþróttahúsi Gróttu 7. september kl. 19.30. Katrín Anna, dóttir Ásmundar, leikur með báðum liðum. „Allir...

UMSK-mótið: HK og Afturelding hefja leik

Flautað verður til leiks í UMSK-móti kvenna í handknattleik í kvöld. HK tekur á móti Aftureldingu í Kórnum klukkan 17.30. Nokkrir leikmenn HK-liðsins er nýkomnir til landsins eftir að hafa staðið í ströngu með U18 ára landsliðinu á heimsmeistaramótinu...

Molakaffi: Brynhildur Eva, Emilía Ósk, Hansen, Dzaferovic, semja við markvörð

Brynhildur Eva Thorsteinson hefur gengið til liðs við Fjölni/Fylki frá Fram og skrifað undir tveggja ára samning eftir því fram kemur á samfélagsmiðlum Fjölnis-liðsins. Fjölnir/Fylkir leikur í Grill66-deild kvenna á komandi keppnistímabili. Emilía Ósk Steinarsdóttir leikur ekki með FH á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -