Handknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur krækt í liðsauka frá Færeyjum fyrir næsta keppnistímabil í Grill66-deildinni. Sagt er frá því á samfélagsmiðlum deildarinnar að samið hafi verið við Jonn Róa Tórfinnsson.
Jonn Rói er 22 ára gamall Færeyingur sem leikur í...
Handknattleikskonan Guðrún Erla Bjarnadóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Fjölni/Fylki sem leikur í Grill66-deildinni. Guðrún Erla er þrautreynd og mun örugglega styrkja verulega við hið unga sameinaða lið félaganna tveggja.
Guðrún Erla lék með HK lengst af á...
Guðrún Þorláksdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Gróttu sem leikur í Grill66-deildinni. Guðrún er 24 ára gömul og leikur sem línumaður Hún hefur leikið með meistaraflokki Gróttu undanfarin sex ár og er einn reynslumesti leikmaður liðsins...
Handknattleikskonan Ída Margrét Stefánsdóttir hefur ákveðið að snúa til baka til Gróttu en hún lék nokkra leiki með liðinu snemma árs eftir að lánasamningur var gerður á milli hennar og Vals. Ída Margrét hefur nú skrifað undir eins árs...
Emma Havin Sardarsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild FH. Emma Havin, leikur í hægra horni og er ein af leikreyndari liðsmönnum FH-liðsins sem leikur í Grill66-deildinni á næsta keppnistímabili.
Emma Havin skoraði 64 mörk í 20 leikjum FH-liðsins í...
Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar og U20 ára landsliðsins sem tekur þátt í EM í júlí hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til ársins 2025. Adam kom til félagsins árið 2020 frá ÍR og var þá hálft í hvoru hættur...
Tinna Sigurrós Traustadóttir leikmaður Selfoss sópaði til sín verðlaunum fyrir frammistöðuna í Grill66-deild kvenna á nýliðinni leiktíð á verðlaunahófi Grill 66 deildar karla og kvenna sem haldið var í Minigarðinum í hádeginu. Hún hlaut þrenn verðlaun. Nafn hennar og...
Verðlaunahóf Olís- og Grill 66 deildar karla og kvenna fer fram í Minigarðinum í dag og hefst klukkan 12.
Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með streymi frá viðburðinum. Útsending hefst klukkan 12.15.
https://youtu.be/x5COMB48Ods
Nú liggur fyrir hvaða lið taka þátt í deildakeppni Íslandsmótsins í handknattleik keppnistímabilið 2022/2023. Ekkert kemur óvart hvaða lið skipa Olísdeildir karla og kvenna enda hefur ekkert lið helst úr lestinni nú eins og í fyrra. Færri lið eru...
Sólveig Lára Kjærnested hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokksliðs ÍR í kvennaflokki. Með þessu snýr hún aftur til uppeldisfélagsins en Sólveig Lára steig sín fyrstu skref á handboltavellinum undir merkjum ÍR á barnsaldri.
Um er að ræða frumraun Sólveigar Láru í...
Eyrún Ósk Hjartardóttir hefur skrifað undir samning við Fjölni/Fylki og leikur með liðinu í Grill66-deildinni á næsta keppnistímabili. Eyrún er uppalin hjá Fylki og spilaði með yngri landsliðum. Hún spilaði um tíma með meistaraflokk Fjölnis og síðan með sameinuðu...
Haldið er áfram að styrkja kvennalið Víkings í handknattleik fyrir átökin í Grill66-deildinni á næsta keppnistímabili. Í gær skrifaði Guðrún Jenný Sigurðardóttir undir samning við Fossvogsliðið. Hún var síðast leikmaður Hauka í Hafnarfirði.
Guðrún er 26 ára gamall línumaður sem...
Handknattleikskonan Telma Medos hefur ákveðið að yfirgefa HK og ganga til liðs við FH sem leikur í Grill66-deildinni. Telma er fædd árið 2003 og hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands. Hún leikur í stöðu línumanns en þykir einnig...
„Stóru fréttirnar af fundinum eru fjórar reglubreytingar sem taka gildi í sumar sem hafa verið töluvert í umræðunni síðustu vikur og mánuði,“ sagði Kristján Gaukur Kristjánsson nýkjörinn formaður dómaranefndar HSÍ í samtali við handbolta.is.
Fyrsta embættisverk Kristjáns Gauks, ef...
Ólafur Víðir Ólafsson hefur verið ráðinn mótastjóri Handknattleikssambands Íslands. Kemur hann galvaskur til starfa 1. ágúst.
Ólafur Víðir er vel þekktur innan handknattleikshreyfingarinnar. Árum saman lék hann með HK og varð m.a. bikarmeistari 2003 og Íslandsmeistari 2012 með með liði...