- Auglýsing -
- Auglýsing -

Landsliðin

- Auglýsing -

Rúnar: Landsliðsferlinum er lokið

„Ég er bara sáttur stöðu mála. Ég náði að leika 100 landsleiki, skora mörg mörk og taka þátt í nokkrum stórmótum. Ég er stoltur af að hafa hafa fengið tækifæri til þess að leika með landsliðinu í eitt hundrað...

Áratuga langt samstarf HSÍ og Samskipa endurnýjað

Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, og Samskip hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli. Samskip hefur verið bakhjarl HSÍ frá 1998 og fagnar HSÍ því í fréttatilkynningu í dag að endurnýja samstarfssamning sinn við Samskip. „Samskip hefur verið öflugur samstarfsaðili HSÍ og stutt...

Farsælt samstarf framlengt

Í síðustu viku undirrituðu Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, og Arion banki samkomulag um áframhaldandi samstarf þeirra á milli í höfuðstöðvum Arion banka. Arion banki hefur verið einn af dyggustu bakhjörlum HSÍ allt frá árinu 2004 og er það afar mikilvægt...
- Auglýsing -

Undanþága veitt fyrir Ásvelli

Handknattleikssambandi Íslands barst í dag staðfesting á að Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hafi samþykkt undanþágu vegna íþróttahússins á Ásvöllum sem keppnishúss fyrir landsleiki Íslands á meðan Laugardalshöll verður lokuð vegna viðgerða.A-landslið kvenna hefur spilað síðustu þrjá heimaleiki á Ásvöllum og...

Fjórir núna en voru fimm síðast

Fjórir íslenskir handknattleiksþjálfarar verða í eldlínunni á HM karla í handknattleik sem fram fer í Egyptalandi í janúar en alls taka landslið þrjátíu og tveggja þjóða þátt í mótinu að þessu sinni. Það er einum þjálfara færra en á...

Höllin lokuð í marga mánuði

Byrjað er að rífa upp gólfið í Laugardalshöllinni eftir að heitt vatn rann inn á það og undir svo klukkustundum skipti nótt eina í síðustu viku. Heimildir handbolta.is herma að útlitið sé slæmt og allt að hálft ár geti...
- Auglýsing -

Ísraelsmenn koma í mars

Viðureign Íslendinga og Ísraelsmanna í undankeppni EM 2022 í karlaflokki sem fram átti að fara hér á landi í byrjun nóvember, en ekkert varð af, hefur nú verið sett á helgina 13. og 14. mars á næsta ári. Handknattleikssamband Evrópu,...

„Mikið áfall, svolítið sjokk“

Fimmtudagskvöldið 1. okótóber var hinn 19 ára gamli Haukur Þrastarson, eitt mesta efni í evrópskum handknattleik, í leik með samherjum sínum í pólska meistaraliðinu Vive Kielce gegn Elverum í Noregi. Viðureignin var ein af mörgum þetta tímabilið í Meistaradeild...

Sækja um undanþágu fyrir undanþáguna

„Nú förum við í að sækja um undanþágu fyrir undanþáguna,“ sagði Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands þegar handbolti.is spurði hann hvað væri til ráða vegna landsleikja á næstu mánuðum eftir að vatnsleki í síðustu viku varð þess valdandi...
- Auglýsing -

Laugardalshöll úr leik í mánuði eftir vatnsleka?

Verulega líkur eru til þess að Laugardalshöll verði lokuð fyrir æfingar og keppni næstu mánuði eftir að þúsundir lítrar af heitu vatni láku klukkustundum saman niður á gólfið og undir það í síðustu viku þegar lögn brast að kvöldi...

Stóri hópurinn fyrir HM tilbúinn

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla hefur valið þá 35 leikmenn sem koma til greina í landsliðshópinn sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Egyptalandi í janúar. Af þeim eru átta sem leika með íslenskum félagsliðum....

Sparkassen-mótið slegið af

Hið árlega SparkassenCup mót unglingaliða karla hefur verið aflýst að þessu sinni en til stóð að halda það á milli jóla og nýárs, eins og verið hefur árlega frá 1987. Útilokað er að halda mótið vegna ástands sem ríkir...
- Auglýsing -

Forkeppni HM frestað

Ákveðið hefur verið að fresta forkeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik sem fram átti að fara í byrjun desember. Þess í stað er ráðgert að keppnin verði dagana 19. - 21. mars 2021. Ástæður frestunarinnar eru tengdar kórónuveirufaraldrinum. Íslenska...

Hákon Daði í úrvalsliði EHF – myndskeið

Hákon Daði Styrmisson er í liði fyrstu og annarrar umferðar undankeppni Evrópumótsins í handknattleik eftir stórbrotna frammistöðu með íslenska landsliðinu í Laugardalshöll gegn Litháaen á síðasta miðvikudag. Handknattleikssamband Evrópu tók saman úrvalsliðið og birti á vef sínum í dag...

Tíu leikjum lokið en tíu eru framundan

Tíu viðureignir eru að baki í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik en leikið var í gær og í fyrradag. Framundan eru tíu leikir til viðbótar á laugardag og sunnudag. Íslenska landsliðið leikur ekki um helgina, ekki frekar en mörg...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -