- Auglýsing -
- Auglýsing -

Áratuga langt samstarf HSÍ og Samskipa endurnýjað

Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ t.v. og Birkir Hólm Guðnason forstjóri Samskipa á Íslandi. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, og Samskip hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli. Samskip hefur verið bakhjarl HSÍ frá 1998 og fagnar HSÍ því í fréttatilkynningu í dag að endurnýja samstarfssamning sinn við Samskip.

„Samskip hefur verið öflugur samstarfsaðili HSÍ og stutt vel við íslenskan handknattleik í áratugi. Það er því mikið fagnaðarefni að endurnýja samstarfssamning HSÍ við Samskip en samstarfið hefur varað óslitið í yfir 20 ár sem sýnir sterk tengsl Samskipa við öflugt afreksstarf,“ segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ í fréttatilkynningu sambandsins.

„Við hjá Samskipum erum ánægð með að geta stutt áfram við HSÍ en Samskip hafa verið bakhjarl um langt skeið, eða í 22 ár. Frá okkar bæjardyrum séð er stuðningurinn við HSÍ ekki bara fjárhagslegur stuðningur heldur líka til marks um hvernig við störfum hjá Samskipum. Við missum ekkert sjónar á langtímamarkmiðum og fylgjum þeim eftir og ræktum viðskiptasambönd með svipuðum hætti. Við viljum vera til staðar fyrir HSÍ jafnt sem okkar viðskiptavini,“ segir Birkir Hólm Guðnason forstjóri Samskipa á Íslandi.

HSÍ lýsir yfir ánægju sinni með þennan samning og vonast til þess að eiga gott samstarf við Samskip í framtíðinni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -