Aganefnd HSÍ segir í úrskurði sínum, sem birtur er í dag að ekki sé ástæða til þess að aðhafast vegna máls sem kom upp í leik Kórdrengja og Harðar í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ 16.desember á Ásvöllum.
Samkvæmt skýrslu dómara...
Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir hefur verið lánuð til Olísdeildarliðs Selfoss frá Val út keppnistímabilið. Karlotta er tvítug og örvhent og getur bæði leikið í skyttustöðunni hægra megin og í hægra horni. Karlotta er komin með leikheimild og lék sinni fyrsta...
Aðalsteinn Ernir Bergþórsson er handknattleiksmaður ársins 2022 hjá Þór Akureyri. Hann hlaut viðurkenningu á hófi í félagsheimilinu Hamri í gær þegar íþróttamenn félagsins voru heiðraðir. Aðalsteinn Ernir leikur með Þórsliðinu í Grill 66-deild karla.
Kostadin Petrov liðsfélagi Aðalsteins Ernis hjá...
Endijs Kusners og Rolands Lebedevs leikmenn Harðar á Ísafirði eru í landsliðshópi Lettlands sem leikur í Baltic cup mótinu, fjögurra liða móti, sem fram fer í Riga í Lettlandi á laugardag og sunnudag. Landslið Eistlands, Litáen og Finnlands taka...
Fanney Þóra Þórsdóttir og Ásbjörn Friðriksson voru valin handknattleiksfólk ársins hjá FH. Þau tóku við viðurkenningum sínum á uppskeruhófi FH sem haldið var á síðasta degi síðasta árs.
Fanney Þóra var fyrirliði FH á síðasta keppnistímabili þegar liðið hafnaði...
Elín Klara Þorkelsdóttir og Heimir Óli Heimisson, leikmenn handknattleiksliða Hauka í Olísdeildunum, voru í gær útnefnd íþróttamenn Hauka fyrir árið 2022 á uppskeruhátíð sem haldið var á Ásvöllum. Tíu íþróttamenn af báðum kynjum voru tilefndir í valinu að þessu...
Handbolti.is óskar lesendum gleðilegs árs 2023 og þakkar fyrir lestur, hvatningu og stuðning á árinu sem var að líða.
Elsa Karen Þorvaldsdóttir Sæmundsen leikmaður meistaraflokks Fjölnis/Fylkis í Grill 66-deildinni í handbolta var tilnefnd sem íþróttakona Fylkis.
Ingvar Örn Ákason yfirþjálfari...
Karen Tinna Demian og Dagur Sverrir Kristjánsson eru handknattleiksfólk ársins hjá ÍR. Þau tóku á móti viðurkenningum því til staðfestinar á árlegri verðlaunaafhendingu félagsins sem fram fór 27. desember.
„Karen er nú fyrirliði liðsins sem hefur farið vel af stað...
Undanfarna daga hefur handbolti.is birt þær fréttir sem oftast voru lesnar á árinu sem rennur sitt skeið á enda á miðnætti. Fimm fréttir á dag, alls 20 fram til þessa. Í dag er röðin komin að þeim fimm vinsælustu.
5.sæti:
https://handbolti.is/eru-i-ongum-sinum-yfir-bidinni-eftir-viktori-gisla/
4.sæti:
https://handbolti.is/markverdir-fa-aukna-vernd-midjuhringur-tekinn-upp/
3.sæti:
https://handbolti.is/thrju-raud-spjold-og-annar-domarinn-rauk-a-dyr/
2.sæti:
https://handbolti.is/thetta-er-hreinlega-ekki-haegt-thvi-midur/
1.sæti:
https://handbolti.is/sigvaldi-bjorn-hefur-leikid-sinn-sidasta-leik/
Mest...
Viggó Sigurðsson fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik karla, þjálfari og leikmaður utan lands sem innan um langt árabil, var í gær sæmdur gullmerki með lárviðarsveig sem er æðsta heiðursmerki Víkings. Viggó var m.a. í fyrsta Íslandsmeistaraliði Víkings í handknattleik 1975....
Meistaraþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson framlengdi á dögunum samning sinn um þjálfun á karlaliði Vals í handknattleik. Viðbótin við samninginn gerir að verkum að Snorri Steinn er samningsbundinn Val út keppnistímabilið vorið 2025, eftir því sem fram kemur í tilkynningu...
Handknattleiksdeild ÍBV hefur klófest markvörð fyrir karlalið félagsins sem er ætlað að standa vaktina með Petar Jokanovic þegar flautað verður til leiks á ný í Olísdeild karla í lok janúar. Um er að ræða Hvít-Rússann Pavel Miskevich.
Miskevich, sem er...
Á næst síðasta degi ársins heldur handbolti.is áfram að rifja upp þær fréttir sem oftast voru lesnar á árinu 2022. Að þessu sinni er komið að fréttum sem eru í sjötta til tíunda sæti.
Í fréttunum fimm kemur m.a. nýkrýndur...
Íslands- og bikarmeistarar Vals í handknattleik karla eru lið ársins 2022 að mati félaga í Samtökum íþróttafréttamanna. Valsmenn tóku við viðurkenningu sinni í kvöld í hófi Samtaka íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Hörpu. Þetta er í fyrsta...
Þórir Hergeirsson, landsliðsþjálfari Evrópu- og heimsmeistara Noregs í handknattleik kvenna, var í kvöld kjörinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna í hófi sem samtökin héldu ásamt Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í Hörpu.
Þórir hreppir hnossið annað árið í röð. Hann hlaut...