Darri Aronsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka um þrjú ár. Darri mun því leika með meistaraflokki félagsins áfram næstu árin. Hann varð fyrir erfiðum meiðslum haustið 2019 og kom sterkur inn í Haukaliðið í byrjun árs.
Darri...
Skyttan Adam Haukur Baumruk hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka til næstu þriggja ára. Adam hefur verið einn af lykilmönnum meistaraflokks undanfarin ár og er einn af leikreyndustu leikmönnum liðsins. Á tímabilinu hefur Adam skorað 41 mark í...
Varnarmaðurinn sterki, Róbert Sigurðarson, ætlar að halda sínu striki með bikarmeisturum ÍBV. Hann hefur staðfest þá ætlan sína með því að skrifa nafn sitt undir tveggja ára samning við ÍBV. Félagið greinir frá þessu í dag.
Róbert er á sínu...
Sigurður Örn Þorleifsson, varaformaður handknattleiksdeildar FH, liðsstjóri og þúsund þjalasmiður, er eins og fleiri þeirrar skoðunar að ekki sé heppilegt að keppni í Olísdeild karla standi yfir til loka júlí eins og útlit er fyrir að óbreyttri leikjadagskrá. Sigurður...
Línumaðurinn efnilegi Þórður Tandri Ágústsson gengur til liðs við Stjörnuna í sumar. Þórður Tandri leikur nú með Þór Akureyri og hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega frammistöðu, vinnusemi og harðfylgi. Frá þessu greinir Handknattleiksdeild Stjörnunnar í tilkynningu á Facebook-síðu...
Vinstri hornarmaðurinn Kristófer Dagur Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Kristófer kom til Fram frá Þýskalandi en þar lék hann með TV 05 Mülheim Oberligunni en þar áður lék hann með uppeldisfélagi sínu, HK.
Kristófer Dagur hefur...
Hægri hornamaðurinn Starri Friðriksson hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna. Gildir samningurinn út keppnistímabilið 2024. Starri hefur skoraði 45 mörk í 15 leikjum í Olísdeildinni á keppnistímabilinu, þar af níu mörk gegn KA í 32:27 sigri Stjörnunnar í...
Færeyski handknattleiksmaðurinn Áki Egilsnes, sem verið hefur í herbúðum KA frá árinu 2017 við góðan orðstír kveður félagið eftir keppnistímabilið. Fréttavefurinn akureyri.net segir frá brotthvarfi Áka í gær.
Ákvörðun Áka að söðla um er ekki komin til vegna komu nýrra...
Þrír leikmenn karlaliðs Aftureldingar í handknattleik hafa skrifað undir nýja samning við félagið og gilda þeir út leiktíðina 2023. Hér er um að ræða Svein Andra Sveinsson, Bergvin Þór Gíslason og stórskyttuna efnilegu, Þorstein Leó Gunnarsson, sem vakið hefur...
KA-menn slá ekki slöku við um þessar mundir. Þeir eru fyrir nokkru komnir á fullt að undirbúa næsta keppnistímabil í handboltanum þótt enn séu nokkuð í að öll kurl verði komin til grafar á yfirstandandi leiktíð þar sem keppni...
Örvhenti hornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson sem nú leikur með Team Tvis Holstebro í Danmörku er á heimleið eftir tímabilið og mun að öllum líkindum ganga til liðs við KA samkvæmt heimildum handbolta.is. Óðinn Þór hefur átt í viðræðum við...
Handknattleiksdeild ÍBV hefur gert samkomulag við færeyska handknattleiksmanninn Dánjal Ragnarsson um að leik með ÍBV næstu þrjú ár frá og með næsta keppnistímabili.
Dánjal er fæddur árið 2001, er rétthent skytta og 194 cm á hæð og er fæddur og...
Þrír leikmenn hafa skrifað undir nýja samninga við handknattleiksdeild Fram. Þar eru um að ræða markvörðinn Lárus Helga Ólafsson og Færeyingana Vilhelm Poulsen og Rógva Dal Christiansen en tveir þeirra síðarnefndu gengu til liðs við Fram á síðasta sumri.
Lárus...
Hornamaðurinn öflugi, Theodór Sigurbjörnsson, hefur skrifað undir nýjan samning til næstu tveggja ára við bikarmeistara ÍBV. Frá þessu er greint í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV.
Theodór hefur undanfarin ár verið einn allra besti hornamaður Olísdeildarinnar og hefur verið lykilmaður hjá...
Leikmenn Þórs á Akureyri og Vals ríða á vaðið í upphafsleik 16. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar þeir mætast í Íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 18. Fleiri leikir í 16. umferðinni verða háðir annað kvöld. Fjörið í...