- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís kvenna

- Auglýsing -

Ein sú öflugasta kveður handknattleikssviðið

Ein öflugasta handknattleikskona landsins um langt árabil, Sólveig Lára Kjærnested, hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna. Handknattleiksdeild Stjörnunnar greinir frá ákvörðun Sólveigar Láru en hún hefur leikið fyrir Stjörnuna nær allan sinn meistaraflokksferil að vetrinum 2004/2005 undanskildum. Þá...

Sú sænska semur við ÍBV til tveggja ára

Lina Cardell, sem kom til ÍBV á láni í janúar frá Savehof í Svíþjóð, hefur gert nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. Cardell er öflugur örvhentur hornamaður sem náði sér afar vel á strik í sterku liði ÍBV sem...

Evrópubikar kvenna – hvaða lið leiða saman hesta sína?

Í vikunni var dregið í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna. Þrjú íslensk lið voru í pottinum en fleiri lið sem íslenskar handboltakonur leika með taka þátt í keppninni. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir hvaða lið drógust saman. Ráðgert er...
- Auglýsing -

Hér eru mótherjar íslensku liðanna í Evrópukeppninni

Dregið var í morgun í Evrópukeppni félagsliða, þ.e. til forkeppni Evrópudeildar karla og kvenna og í Evrópubikarkeppni karla og og kvenna. Sjö íslensk félagslið taka þátt í Evrópukeppni að þessu sinni. Hér að neðan má sjá gegn hverjum þau...

Nöfn sjö íslenskra liða verða í skálunum

Nöfn sjö íslenskra liða verða á meðal 205 annarra í skálunum í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í fyrrmálið þegar dregið verður til fyrstu og annarrar umferðar í undankeppni Evrópudeildar karla og kvenna í Evrópubikarkeppni beggja kynja. Herlegheitin hefjast klukkan 9 árdegis...

Íslensku liðin þrjú geta mæst í Evrópukeppni

Íslensku félagsliðin þrjú sem eru skráð til leiks í Evrópubikarnum í handknattleik kvenna geta dregist saman í fyrstu umferð þegar dregið verður 20. júlí. Íslandsmeistarar KA/Þórs verða í efri styrkleikaflokkunum en Valur og ÍBV í neðri flokknum. Tuttugu og...
- Auglýsing -

Stjarnan krækir í markvörð frá ÍBV

Markvörðurinn Darija Zecevic hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Hún kemur frá ÍBV þar sem hún hefur verið undanfarin tvö ár. Zecevic er 23 ára og er frá Svartfjallalandi, og lék á sínum tíma með öllum yngri...

Semur til 2024 eftir barnsburðarleyfi

Handknattleikskonan Stefanía Theodórsdóttir hefur samið við kvennalið Stjörnunnar til ársins 2024. Mun hún styrkja liðið töluvert fyrir komandi átök en Stefanía var í barnsburðarleyfi á síðasta keppnistímabili. Stefanía þekkir TM-höllina mjög vel enda hefur hún spilað með meistaraflokki Stjörnunnar...

Er ýmislegt til lista lagt

Handknattleikskonunni Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur er ýmislegt til lista lagt á íþróttavellinum. Hún er ein reyndasta og sigurælasta handknattleikskona landsliðsins og mætti til leiks á ný með Val í Olísdeildinni þegar á síðasta keppnistímabil leið auk þess sem hún gaf...
- Auglýsing -

Landsliðskonan verður áfram í herbúðum meistaranna

Landsliðskonan í handknattleik og leikmaður Íslands- og deildarmeistara KA/Þórs, Ásdís Guðmundsdóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór. Ásdís sem er 23 ára gömul er uppalin hjá KA/Þór og tók ung skrefið upp í meistaraflokk. „Ásdís hefur verið...

Molakaffi: Zein, Svensson, Maciel, Brynja

Barcelona staðfesti í gær að félagið hafi samið við Egyptann Ali Zein um að leika með liði félagsins. Zein á að einhverju leyti að koma í stað Arons Pálmarssonar. Zein kemur til Barcelona frá Sharjah Sports Club í Sameinuðu...

Hanna Guðrún slær ekkert af

Ein reyndasta handknattleikskona Íslands og þótt víða væri leitað, Hanna Guðrún Stefánsdóttir, hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu tveggja ára. Hanna Guðrún hefur leikið með Stjörnunni í 11 ár en ferill hennar í meistaraflokki spannar ríflega aldarfjórðung. Hanna...
- Auglýsing -

Molakaffi: Emelía, Ágúst, Hrafnhildur, Einar Örn, Tryggvi, Herrem, Markussen

Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir og Ágúst Birgisson voru valin bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna hjá FH á nýliðinni leiktíð. Fengu þau viðurkenningar þess efnis í lokahófi um síðustu helgi.  Emelía Ósk Steinarsdóttir og miðjumaðurinn Einar Örn Sindrason urðu fyrir valinu...

Myndband: Draumur varð að veruleika – heimildarmynd

Handknattleikslið í KA/Þór áttu stórkostlegt keppnisár og draumurinn um Íslandsmeistaratitilinn varð að veruleika og reyndar gott betur því einnig varð liðið deildarmeistari í Olísdeildinni og vann meistarakeppni HSÍ. Liðið rakaði til sin þeim verðlaunum sem leikið var um á...

Efnilegur Færeyingur semur við Hauka

Færeyska handknattleikskonan Natasja Hammer, sem er af íslensku bergi brotin, hefur skrifað undir tveggja ára saming við Hauka. Natasja, sem er 18 ára gömul, er ein af efnilegastu handknattleikskonum Færeyja. Hún kemur til Hauka frá Kyndli í Þórshöfn. Í tilkynningu...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -