- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Stjarnan sótti sigur til Eyja

Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann afar sannfærandi sigur á ÍBV í fyrsta leik liðanna í 1. umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 28:22. Næst eigast liðin við í TM-höllinni á laugardaginn og þá...

Skoruðu fjögur síðustu mörkin og fengu fyrsta vinninginn

Með frábærum endaspretti tryggði KA/Þór sér sigur á Haukum í fyrstu viðureign liðanna í 1. umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í KA-heimilinu í kvöld, 30:27. Haukar skoruðu ekki mark síðustu níu mínútur leiksins eða eftir að Sara Odden...

Selfoss mætir Val – tvíframlengt í háspennuleik í Krikanum.

Selfoss er komið í undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik eftir sigur á FH í tvíframlengdum háspennuleik í Kaplakrika í kvöld, 38:33. Selfoss mætir Val í undanúrslitum og verður fyrsta viðureign liðanna í Origohöllinni á mánudagskvöld. Leikurinn í kvöld var frábær...
- Auglýsing -

Saga Sif stendur ekki í marki Vals í úrslitakeppninni

Saga Sif Gíslasdóttir markvörður Vals og landsliðsmarkvörður leikur ekki fleiri leiki með Val á þessu keppnistímabili. Hún lék sinn síðasta leik í bili þegar Valur vann KA/Þór í lokaumferð Olísdeildar á skírdag. Saga Sif segir frá þeim gleðitíðindum á samfélagsmiðlum...

HK vill eina deild kvenna sem skipt verði upp um áramót

Handknattleiksdeild HK leggur til á ársþingi HSÍ sem fram fer á laugardaginn að breyting verði gerð á keppni í meistaraflokki kvenna um að leikið verði í einni deild ef að a.m.k. tíu lið skrá sig til leiks á Íslandsmótinu....

Félögin standa sig illa í dómaramálum – sex þeirra skila auðu

Handknattleiksfélög landsins standa sig illa við að tilnefnda dómara til starfa og hefur þeim aðeins tekist að tilnefna rétt rúmlega helming þess fjölda sem þeim ber að gera. Af 19 félögum þá skila sex þeirra, eða nærri þriðjungur auðu,...
- Auglýsing -

Christiansen fylgir í kjölfar landa síns

Færeyski línumaðurinn Rógvi Dal Christiansen hefur leikið sinn síðasta leik með Fram eftir tveggja ára veru hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu Fram. Óvíst er hvað tekur við hjá Christiansen, hvort hann leikur í heimalandinu eða í Danmörku...

Dagskráin: Oddaleikur í Krikanum – úrslitin hefjast í kvennaflokki

Áfram heldur spennan í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar FH og Selfoss mætast í oddaleik í Kaplakrika klukkan 19.30. Mikil spenna ríkti á Ásvöllum í gærkvöld þegar Haukar og KA mættust og fyrrnefnda liðið hafði betur...

Geggjaðir leikir hjá tveimur frábærum liðum

„Þetta voru geggjaðir leikir fyrir áhorfendur enda áttu í hlut tvö frábær lið,“ sagði hinn þrautreyndi leikmaður Hauka, Stefán Rafn Sigurmannsson, í samtali við handbolta.is eftir að Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í kvöld...
- Auglýsing -

Skildi mjög lítið á milli í þessu einvígi

„Við vorum einni vörn frá því að vinna og einni sókn frá framlengingu. Tæpara getur það nú varla verið. Það var mjög lítið sem skildi á milli í þessu einvígi,“ sagði Jónatan Þór Magnússon þjálfari KA eftir að lið...

Naumara gat það ekki verið

Haukar komust í undanúrslit í kvöld eftir æsilega spennandi þriðja leikinn við KA í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik, 31:30, á Ásvöllum. Haukar mæta ÍBV í undanúrslitum. Fyrsta viðureignin verður á sunnudaginn á Ásvöllum.Tæpara gat það ekki...

Hanna framlengir veruna í Eyjum

Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur til tveggja ára en hún er að ljúka sínu öðru keppnistímabili með Eyjaliðinu. Hanna, eins og hún er oftast kölluð, gekk til liðs við ÍBV fyrir tveimur árum síðan. Hún var að...
- Auglýsing -

Erum með gæðin til að vinna aftur

„Það má reikna með keimlíkum leik í kvöld eins og undan er gengið. Varnarleikurinn verður í öndvegi. Tíminn á milli leikja er skammur og býður ekki upp á að gera miklar breytingar,“ sagði Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA, í...

„Nú er að láta kné fylgja kviði“

„Að baki eru tveir hörkuleikir á milli liðanna. Ég á ekki von á öðru en framhald verði á og að bæði lið selji sig dýrt í kvöld,“ sagði Aron Kristjánsson þjálfari Hauka sem mæta KA í oddaleik á Ásvöllum...

Dagskráin: Uppskrift að spennu og skemmtun

Augu marga beinast að oddaleik Hauka og KA í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik sem fram fer á Ásvöllum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Búast má við fjölmenni á leiknum og þess vegna rétt...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -