„Áhuginn er gríðarlegur. Ég reikna með að það verði að minnsta kosti 750 til 1.000 KA-menn í stúkunni á Ásvöllum á morgun. Aðgöngumiðar á leikinn renna út eins og heitar lummur,“ sagði Siguróli Magni Sigurðsson, íþróttafulltrúi KA þegar handbolti.is...
Valur komst í gærkvöld í úrslitaleik Coca Cola-bikarkeppni kvenna í handknattleik með átta marka sigri á ÍBV, 28:20, á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Valur mætir Fram í úrslitaleik keppninnar á morgun, laugardaginn, klukkan 13.30. Síðast mættust lið félaganna í úrslitum keppninnar...
Framarar fóru á kostum og unnu KA/Þór örugglega í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik kvenna, 31:23, í gærkvöld á Ásvöllum. Fram mætir Val í úrslitaleik keppninnar á morgun, laugardag, klukkan 13.30.
Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á Ásvöllum og fangaði...
„Nú hefst undirbúningur við glímuna við Stefán vin minn,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari kvennaliðs Vals glaður á brún og brá eftir öruggan sigur, 28:20, á ÍBV í undanúrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handknattleik á Ásvöllum í gærkvöld.
Valur mætir...
Reykjavíkurfélögin Valur og Fram mætast í úrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handknattleik á laugardaginn. Valur vann öruggan sigur á ÍBV, 28:20, í síðari undanúrslitaleik kvöldsins á Ásvöllum í kvöld eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 12:9.
Þetta...
Fram leikur til úrslita í Coca Cola-bikarnum í handknattleik kvenna sjötta árið í röð á laugardaginn eftir stórsigur á ríkjandi bikarmeisturum KA/Þórs, 31:23, í fyrri undanúrslitaleiknum á Ásvöllum í kvöld. Þetta er um leið í 23. sinn sem Fram...
Efnt verður til hins hins sígilda föstudagsfjörs FH-inga í Sjónarhóli í Kaplakrika í hádeginu á morgun, föstudag.
„Handboltasérfræðingar Ásgeir Örn, Róbert og Svava Kristín mæta til okkar á föstudagsfjör til að ræða Olísdeildina í handbolta. Viðburðurinn verður 11....
KA komst í úrslit Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla í gærkvöld með sigri á Selfoss í framlengdum háspennuleik á Ásvöllum, 28:27. Sigurmarkið skoraði Arnar Freyr Ársælsson þegar tvær sekúndur voru til leiksloka.
KA mætir Val í úrslitaleik Coca Cola-bikarsins...
Valur vann öruggan sigur á FH í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla, 37:27, í gærkvöld á Ásvöllum. Valur mætir KA í úrslitaleik keppninnar á laugardaginn klukkan 16.
Undanúrslitaleikirnir í kvennaflokki fara fram í kvöld.
Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari...
Sigurjón Friðbjörn Björnsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar og einn umsjónarmanna hlaðvarpsþáttarins Leikhléið, veðjar á landsbyggðarslag í úrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handknattleik á laugardaginn.
Undanúrslitaleikirnir fara fram í kvöld á Ásvöllum. Sigurjón Friðbjörn telur að röðin sé komin að...
Áfram verður leikið í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í kvöld á Ásvöllum. Röðin er komin að undanúrslitum í kvennaflokki þar sem þrjú efstu lið Olísdeildar, Fram, Valur, KA/Þór verða í eldlínunni á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld auk ÍBV sem...
KA komst í úrslit Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla í kvöld eftir sigur á Selfoss, 28:27, í magnþrungnum og framlengdum leik á Ásvöllum í kvöld. Arnar Freyr Ársælsson skoraði sigurmarkið tveimur sekúndum áður en framlengingunni lauk. Nokkrum sekúndum áður...
Valur komst í úrslit í bikarkeppninni í handknattleik í kvöld með stórsigri á FH, 37:27, í undanúrslitaleik liðanna í Coca Cola-bikarnum á Ásvöllum. Valsmenn voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:14.
Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem liðin skiptust...
FH og Valur hafa sex sinnum mæst í undanúrslitum bikarkeppninnar í handknattleik karla, sem nú kallast Coca Cola-bikarinn. Sigurleikirnir hafa skipst bróðurlega á milli liðanna, þrír sigurleiki á hvort félag.Síðast mættust lið félaganna í undanúrslitum 2017. Valur vann naumlega...
Í kvöld ræðst hvaða lið mætast á laugardaginn í úrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla. Undanúrslitaleikirnir standa fyrir dyrum á Ásvöllum þar sem leikmenn fjögurra liða eru kallaðir en aðeins tvö þeirra komast áfram.
Lið FH og Vals takast á...