Rúnar Kárason hefur leikið vel með Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni á keppnistímabilinu þótt liði hans hafi ekki gengið sem skildi en það situr í 11. sæti af 14 liðum deildarinnar með þrjú stig.
Rúnar er markahæsti leikmaður liðsins með...
Seltirningurinn Viggó Kristjánsson, leikmaður Stuttgart, er næst markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar þegar þremur umferðum er lokið og Bjarki Már Elísson, Lemgo og markakóngur síðasta tímabils er, í fjórða sæti með 21 mark. Þeir eru fulltrúar Íslands á lista...
Viktor Petersen Norberg skoraði þrjú mörk og Óskar Ólafsson eitt þegar lið þeirra Drammen vann Viking frá Stavangri, 35:23, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Drammenshallen. Með sigrinum færðist Drammen-liðið upp í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar....
Neistin, liðið sem Arnar Gunnarsson þjálfar, tapaði sínu fyrsta stigi í dag þegar það gerði jafntefli við VÍF frá Vestmanna, 35:35, í hörkuleik í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn. Teitur Magnússon jafnaði metin fyrir Neistan þegar þrjár sekúndur voru...
Áfram heldur sigurganga IFK Kristianstad í sænsku úvaldsdeildinni í handknattleik og annan leikinn í röð vann Kristianstad-liðið hnífjafna viðureign á síðustu sekúndum.
Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk og átti sex stoðsendingar í dag og Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrirliði,...
Kvennalið Fram hefur orðið fyrir annarri blóðtöku á innan við viku en nú er ljóst að landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir leikur ekki meira með liðinu á keppnistímabilinu. Perla Ruth staðfesti þetta við handbolta.is áðan.
„Ég á von á barni...
Fjórða umferðin í Meistaradeild kvenna fór fram um helgina en kórónuveiran hélt þó áfram að setja strik í reikninginn þar sem einum leik var frestað og einhver lið voru án leikmanna.
Danska liðið Odense hefur hlotið verðskuldaða athygli á þessari...
Þrjú lið eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í þýsku 1. deildinni en síðustu leikir umferðarinnar voru leiknir í dag. Rhein-Neckar Löwen, sem Alexander Petersson og Ýmir Örn Gíslason leika með, og Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar...
Hildigunnur Einarsdóttir og samherjar hennar í Bayer Leverkusen töpuðu naumlega fyrir liði Buxtehuder SV, 17:16, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag en leikið var á heimavelli Buxtehuder. Einstaklega fá mörk voru skoruð í leiknum, aðeins 33, þar...
Keppni í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla hefur meira og minna legið niðri síðustu 10 daga vegna kórónuveirunnar. Einn og einn leikur á stangli hefur farið fram og óvíst er hvernær keppni hefst af krafti aftur. Eitthvað hefur verið...