Sigursteinn Arndal hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild FH og stefnir þar með á að stýra FH-liðinu út leiktíðina vorið 2025. Hann er að ljúka sínu þriðja keppnistímabili með FH-liðið sem mætir Selfoss í fyrstu umferð...
„Ég fékk símtal rétt fyrir klukkan ellefu á miðvikudagskvöldið og var spurð hvort ég gæti verið tilbúin að fara út með landsliðinu í fyrramálið. Auðvitað sagði ég já,“ sagði Margrét Einarsdóttir sem skyndilega og fremur óvænt var kölluð inn...
Hafnarfjörður verður vettvangur átta liða úrslita Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Tveir síðustu leikir fyrstu umferðar fara fram í bænum og það á sama tíma. FH-ingar fá leikmenn Selfoss í heimsókn í Kaplakrika. Á sama tíma og KA-menn...
Síðasta umferð undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik verður leikin á morgun og á sunnudaginn. Að henni lokinni liggur fyrir hvaða 12 landslið tryggja sér keppnisréttinn til viðbótar vð gefstgjafana þrjá, Slóvena, Svartfellinga og Norður Makedóníumenn auk ríkjandi Evrópumeistara Noregs....
Daníel Þór Ingason og samherjar hans í Balingen unnu TuS N-Lübbecke, 26:21, í þýsku 1.deildinni í handknattleik í gær á heimavelli. Daníel Þór skoraði ekki mark en kom talsvert við sögu í leiknum, einkum í vörninni. Með sigrinum komst...
Deildarmeistarar Olísdeildar karla, Valur, voru ekki í neinum vandræðum með Fram í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum í Origohöllinni í kvöld, 34:24. Valur var sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:11.
Fram var fyrir áfalli eftir um...
ÍR-ingar sluppu svo sannarlega með skrekkinn í kvöld gegn Kórdrengjum í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum umspils um sæti í Olísdeild karla í handknattleik. Það var ekki fyrr en að lokinni framlengingu sem leikmenn ÍR gátu fagnað sigri, 37:34....
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik kom í kvöld til Zrenjanin í Serbíu þar sem það mætir serbneska landsliðinu í úrslitaleik um farseðil á Evrópumeistaramótið sem fram fer í nóvember.
Lagt var af stað um miðja nótt frá Laugardal til Keflavíkurflugvallar þaðan...
ÍBV fór hressilega af stað í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik þegar liðið vann Stjörnuna afar örugglega í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum, 36:27, í Vestmannaeyjum í kvöld. Liðin mætast öðru sinni í TM-höllinni á sunnudaginn og...
Fjölnir er kominn yfir í rimmunni við Þór Akureyri í undanúrslitum umspilsins um sæti í Olísdeild karla í handknattleik eftir að hafa unnið með fjögurra marka mun, 28:24, í fyrstu viðureign liðanna í Dalhúsum í dag. Liðin mætast öðru...
Vaxandi spennu gætir síðustu dagana áður en þing Alþjóða handknattleikssambandsins hefst í Kaíró. Mikil eftirvænting ríkir vegna væntanlegs forsetakjörs...