- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: May, 2026

Meistarar tólfta tímabilið í röð

París Saint-Germain varð í gærkvöldi Frakklandsmeistari, tólfta árið í röð, eftir 34:31 sigur á Nantes í toppslag frönsku 1. deildarinnar. PSG hefur nú alls unnið deildina 13 sinnum og það á undanförnum 14 tímabilum. Tvær umferðir eru eftir í deildinni...

Erla Sif til Stjörnunnar

Erla Sif Leósdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá uppeldisfélagi sínu Val og skrifar undir tveggja ára samning í Garðabænum. Erla Sif er 18 ára vinstri hornamaður sem lék 16 leiki með Val 2 í Grill 66 deild kvenna...

„Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi“

„Ég er gríðarlega vonsvikin út í niðurstöðu HSÍ. Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi,“ segir Hafdís Renötudóttir landsliðskona og markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals í viðtali við Sýn/Vísir. Hafdís er mjög ósátt við það hvernig HSÍ og aganefnd tóku...

Komnir með bakið upp við vegg

Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Kadetten Schaffhausen eru komnir með bakið upp á vegg í baráttunni um meistaratitilinn í Sviss. Í kvöld töpuðu þeir öðru sinni fyrir HC Kriens-Luzern í úrslitum. Að þessu sinni var munurinn á liðunum...

Tumi Steinn færir sig á milli félaga í Austurríki

Tumi Steinn Rúnarsson hefur samið við austurríska handknattleiksliðið HSG XeNTiS Lipizzanerheimat fyrir næsta keppnistímabil. Félagið greindi frá komu hins 26 ára gamla leikstjórnanda í dag. Tumi Steinn hefur undanfarin tvö ár leikið með Alpla Hard og á þeim tíma...

Kolstad vann úrslitakeppnina með stórsigri í Drammen

Kolstad gjörsigraði Drammen HK í síðari úrslitaleik liðanna í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í Drammenshallen í dag, 39:24. Kolstad vann þar með úrslitakeppnina og öðlast þar með rétt til þess að sækja um keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu...

Andri Þór framlengir við HK til tveggja ára

Andri Þór Helgason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, HK. Hann var einn mikilvægasti leikmaður Kópavogsliðsins á síðustu leiktíð og skoraði m.a. 92 mörk í 22 leikjum HK í Olísdeildinni auk sex marka í tveimur...

Verður Aron ráðinn aðalþjálfari FH á morgun?

Handknattleiksdeild FH hefur boðað til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag. Efni er m.a. þjálfaramál meistaraflokks karla. Væntanlega verður tilkynnt um ráðningu Arons Pálmarssonar í starf aðalþjálfara FH-liðsins. Fregnir um að Aron taki við af Sigursteini Arndal hafa verið uppi síðan...

Ekkert verður af lokahófi vegna áhugaleysis

Áform Handknattleikssambands Íslands um að halda lokahóf næsta laugardagskvöld hafa lognast út af vegna áhugaleysis. Sambandið segir frá þessu í tilkynningu í dag. Stefnt er á að halda uppskeruhátíð í næstu viku, líkt og undanfarin ár, þar sem viðurkenningar...

Slæ met þjálfarans ef hann leyfir mér að taka vítaköst

Mathias Gidsel er mikið í því að slá met, bæði með danska landsliðinu og Füchse Berlín. Eitt met hefur hann þó ekki enn náð að slá með danska liðinu. Það er enn í eigu Nikolaj Jacobsen, þjálfara Danmerkur. Jacobsen skoraði...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var...
- Auglýsing -