- Auglýsing -
Mathias Gidsel er mikið í því að slá met, bæði með danska landsliðinu og Füchse Berlín. Eitt met hefur hann þó ekki enn náð að slá með danska liðinu. Það er enn í eigu Nikolaj Jacobsen, þjálfara Danmerkur.
Jacobsen skoraði á sínum tíma 15 mörk í einum landsleik en þrátt fyrir að vera sannkölluð markavél hefur Gidsel ekki náð að skora svo mörg mörk í einum leik með landsliðinu.
„Ég er handviss um að ef Nikolaj byrjar að leyfa mér að taka vítaköst muni ég slá metið hans á einhverjum tímapunkti. En ég held að hann muni ekki leyfa mér það.
Ég verð líklega aldrei vítaskytta landsliðsins og ég þarf þá að slá metið hans án þess að vera það,“ sagði Gidsel í samtali við Ekstra Bladet á léttu nótunum.
- Auglýsing -


