- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Íslendingaliðið féll úr leik í 8-liða úrslitum eftir tvö töp á heimavelli

Íslendingaliðið Alpla Hard féll í kvöld úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppni austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik er liðið tapaði á heimavelli fyrir Aon Fivers, 33: 31, í þriðju viðureign liðanna. Var þetta annað tap Alpla Hard. Fivers...

Veisluhöldum var slegið á frest

Veisluhöldum vegna væntanlegs Íslandsmeistaratitli var frestað í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld eftir að Valur steinlá fyrir ÍBV í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í kvöld, 35:27. ÍBV krækti þar með í sinn fyrsta vinning í...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Stórsigur og sæti í úrslitum er klárt

Blomberg-Lippe vann stórsigur á Thüringer HC, 35:24, í oddaleik í undanúrslitum þýsku 1. deildar kvenna í handknattleik í dag. Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar þrjár Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, leikur þar með til úrslita um...
- Auglýsing-

Kolstad mætir Drammen í úrslitum eftir sigur í oddaleik

Kolstad leikur til úrslita við Drammen HK í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Kolstad vann öruggan sigur á Bergen Håndball, 38:32, í oddaleik í Kolstad Arena í Þrándheimi í dag. Fyrsti úrslitaleikur Kolstad og Drammen fer fram í...

Lengur verður opið fyrir félagaskipti

Hægt verður að hafa félagaskipti á tímabilinu 1. júní fram til 1. febrúar samkvæmt breytingu sem samþykkt var á 69. ársþingi HSÍ í gær. Fyrri reglur gerðu ráð fyrir að mögulegt væri að hafa félagaskipti innanlands frá 1. júní...

Vinnur Valur Íslandsbikarinn fjórða árið í röð?

Þriðji úrslitaleikur Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17. Leikmenn ÍBV eru sannarlega með bakið upp við vegg í þessari rimmu hafandi tapað tveimur...

Breyting á úrslitakeppni úrvalsdeildar – danska mótelið tekið upp

Breyting verður gerð á úrslitakeppni úrvalsdeildar karla á næsta keppnistímabili. Felur hún í sér að tekið verður upp sama fyrirkomulag úrslitakeppni og tíðkast í Danmörku. Liðunum sem hafna í átta efstu sætum úrvalsdeildar karla verður skipt niður í tvo...
- Auglýsing-

Samþykkt að fjölga þátttökuliðum í úrvalsdeild kvenna um tvö

Samþykkt var á 69. ársþingi HSÍ sem fram fór í gær að fjölga liðum í Olísdeild kvenna um tvö frá og með næsta keppnistímabili, 2026/2027. Þar með taka 10 lið þátt í deildinni í stað átta en átta lið...

Molakaffi: Blær, Heiðmar, Arnór, Sveinn

Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi Leipzig í heimsókn til Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 36:33. Leipzig rekur áfram lestina í deildinni þegar liðið á þrjá leiki eftir með 13 stig. GWD...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19368 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -