- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Veisluhöldum var slegið á frest

- Auglýsing -

Veisluhöldum vegna væntanlegs Íslandsmeistaratitli var frestað í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld eftir að Valur steinlá fyrir ÍBV í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í kvöld, 35:27. ÍBV krækti þar með í sinn fyrsta vinning í úrslitarimmunni og tekur á móti Valsliðinu í Eyjum á þriðjudaginn klukkan 18. Val skortir enn einn vinning upp á að verða Íslandsmeistari fjórða árið í röð. Eins og liðið lék í dag, ekki síst í síðari hálfleik, getur verið langt í þann vinning.


Eins og í fyrsta leik liðanna í N1-höllinni fyrir viku byrjaði ÍBV af miklum krafti. Sóknarleikurinn var öflugur og Valsliðið átti í mestu vandræðum. Þegar við bættist að sóknarleikur Vals hökkti þá var leiðin greið fyrir ÍBV-liðið að ná góðu forskoti. Eftir um stundarfjórðung var forskot ÍBV sex mörk, 10:4.

Anton Rúnarsson þjálfari Vals tók leikhlé og kom ró á leikmenn sína. Aðeins fimm mínútum síðar hafði Valur skorað fjögur mörk í röð og minnkað muninn í tvö mörk, 10:8. Arna Karitas Eiríkisdóttir jafnaði metin í fyrsta sinn síðan í stöðunni 0:0 með 13 marki Vals, 13:13, þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks.

Bættur varnarleikur Vals varð til þess að það lifnaði yfir Hafdísi Renötudóttur í markinu. Við bættust þrjú góð mörk Guðrúnar Heklu Traustadóttur. Allt lagðist á eitt með Val síðari 15 mínútur hálfleiksins. Aðeins munaði einu marki í hálfleik, 15:14, ÍBV í vil.

Val tókst ekki að fylgja eftir góðum lokakafla fyrri hálfleiks þegar síðari hálfleikur hófst. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik hafði ÍBV náð fimm marka forskoti. Hvert axarskaftið hafði þá rekið annað í sóknarleik Vals sem leiddi til auðveldra marka ÍBV. Munurinn var skyndilega orðinn fimm mörk, 24:19. Staðan átti bara eftir að versna og axarsköftunum að fjölga því 13 mínútum fyrir leikslok var forskot ÍBV komið í 10 mörk, 29:19. Mestur varð munurinn 11 mörk.

Sóknarleikur Vals var í handaskolum. Ef leikmenn glopruðu ekki boltanum frá sér á einfaldan hátt þá sá Ólöf Maren Bjarnadóttir markvörður ÍBV um að varna þeim leiðina að markinu.

ÍBV hélt tökum sínum á leiknum síðustu 10 mínúturnar og bauð Valsara velkomna til Vestmannaeyja á þriðjudaginn.

Mörk Vals: Elísa Elíasdóttir 6, Arna Karitas Eiríksdóttir 5, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 4/2, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Sara Lind Fróðadóttir 2, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Auður Ester Gestsdóttir 2, Lilja Ágústsdóttir 1, Mariam Eradze 1, Ágústa Rún Jónasdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10, 24,4% – Elísabet Millý Elíasardóttir 1, 25%.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Agnes Lilja Styrmisdóttir 6, Britney Emilie Florianne Cots 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Birna Dís Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 15, 35,7%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -