- Auglýsing -
Samþykkt var á 69. ársþingi HSÍ sem fram fór í gær að fjölga liðum í Olísdeild kvenna um tvö frá og með næsta keppnistímabili, 2026/2027. Þar með taka 10 lið þátt í deildinni í stað átta en átta lið hafa verið í úrvalsdeild í um áratug eftir að deildarkeppni með öllum skráðum liðum var lögð niður.
Um leið var samþykkt að fella eftirfarandi málsgrein úr 47. gr. A-liðs laga HSÍ:
„Ef stjórn HSÍ ákveður að fjölga eða fækka í úrvalsdeild skal sú ákvörðun vera tekin eigi síðar en í júní og taka gildi ári síðar. Ákvörðun þessi getur verið bundið skilyrðum, skal vera rökstudd og skal lögð fyrir næsta ársþing HSÍ til samþykktar.“
„Ákveði stjórn HSÍ að verða við samþykktri ályktun 69. ársþings um fjölgun liða í úrvalsdeild kvenna úr 8 liðum í 10 lið skal sú breyting taka gildi strax fyrir keppnistímabilið 2026–2027, þrátt fyrir ákvæði 47. gr. A-liðs laga HSÍ um að breyting á fjölda liða í úrvalsdeild taki gildi ári síðar.“
Með þessari breytingunni um fjölgun liða, sem samþykkt var með meirihluta atkvæða en níu voru á móti, fylgdi m.a. eftirfarandi rökstuðningur:
- „Rökstuðningur fyrir fjölgun byggir á þróun kvennahandboltans, stöðugleika félaga og leikmannamálum. Of fáir leikmenn spila á hæsta stigi og oft safnast leikmenn í 3–4 bestu liðin.
- Fjölgun í 10 liða deild stækkar hóp leikmanna sem spila á efsta stigi og eykur breidd. 10 liða úrvalsdeild býr til stöðugleika fyrir fleiri lið og gefur þeim meiri tíma til að byggja upp gott keppnislið.
- Stærri deild ýtir undir stöðugri uppbyggingu liða.
- Tillagan er sett fram með það fyrir augum að hægt verði að endurmeta breytinguna eftir 2–3 tímabil ef hún skilar ekki tilætluðum árangri.“
Sjá nánar: https://drive.google.com/file/d/1qUZqUqD-hXW7tX-NuWsKKkojW326tgms/view
Útlit er fyrir að eftirtalin lið verði í úrvalsdeild kvenna leiktíðina 2026/2027: Valur, ÍBV, Haukar, ÍR, Fram, KA/Þór, Stjarnan, HK, Grótta og Víkingur.
Útlit er fyrir að eftirtalin lið verði í næstefstu deild kvenna leiktíðina 2026/2027: Selfoss, FH, Fjölnir, Afturelding og eitthvað af venslaliðum félaga í úrvalsdeild.
- Auglýsing -



