Blomberg-Lippe vann stórsigur á Thüringer HC, 35:24, í oddaleik í undanúrslitum þýsku 1. deildar kvenna í handknattleik í dag. Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar þrjár Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, leikur þar með til úrslita um þýska meistaratitilinn við deildarmeistara Borussia Dortmund. Fyrsti úrslitaleikur liðanna verður í Dortmund á sunnudaginn eftir rúma viku.
Andrea skoraði 3 mörk, gaf 2 stoðsendingar, var með 1 skapað færi, varði 2 skot í vörninni og var vikið einu sinni af leikvelli.
Díana skoraði 1 mark, gaf 6 stoðsendingar, var með 3 sköpuð færi, 1 varið skot og var einu sinni vikið af leikvelli.
Elín Rósa skoraði 4 mörk, gaf 3 stoðsendingar, var með 1 skapað færi og fiskaði tvö vítaköst.
Leikmenn Blomberg-Lippe voru með yfirburði í leiknum frá upphafi til enda. Ekki síst var það að þakkar framúrskarandi varnarleik. Staðan var 19:10 að loknum fyrri hálfleik. Hvorki gekk né rak hjá Thüringer HC-liðinu í síðari hálfleik að snúa vörn í sókn.


