- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingaliðið féll úr leik í 8-liða úrslitum eftir tvö töp á heimavelli

- Auglýsing -

Íslendingaliðið Alpla Hard féll í kvöld úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppni austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik er liðið tapaði á heimavelli fyrir Aon Fivers, 33: 31, í þriðju viðureign liðanna. Var þetta annað tap Alpla Hard. Fivers vann tvisvar á heimavelli Hard í Bregenz.

Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur hjá Alpla Hard með níu mörk auk tveggja stoðsendinga. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark.


Hannes Jón Jónsson þjálfari Alpla Hard var í leikmannahópi liðsins í leiknum. Sennilega var þetta hans síðasti leikur með liðið en snemma árs var tilkynnt að Hannes Jón léti af störfum þegar keppnistímabilinu lyki. Einnig er víst að Tumi Steinn leikur ekki með Alpla Hard á næsta keppnistímabili. Ekki hefur verið opinberað hvað hann tekur sér fyrir hendur.

Víst er að það er nokkurt áfall fyrir Alpla Hard að falla úr leik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir að hafa hafnað í öðru sæti deildarkeppninnar og verið skammt frá deildarmeistaratitlinum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -