- Auglýsing -
Hægt verður að hafa félagaskipti á tímabilinu 1. júní fram til 1. febrúar samkvæmt breytingu sem samþykkt var á 69. ársþingi HSÍ í gær. Fyrri reglur gerðu ráð fyrir að mögulegt væri að hafa félagaskipti innanlands frá 1. júní til 1. nóvember og svo aftur frá 7. janúar til loka 1. febrúar.
Markmið breytinganna er að einfalda framkvæmd reglna um félagaskipti, auka sveigjanleika félaga og leikmanna innan keppnistímabilsins og tryggja samfelldari og skýrari umgjörð um félagaskipti innanlands, eftir því sem fram kom í greinargerð með tillögunni sem handknattleiksdeild Vals lagði fram.
Breytingin var samþykkt án mótatkvæða.
Sjá nánar hér: https://drive.google.com/file/d/1xSzCLlR4_lNBLj8pFxnKEEZxb4zmiein/view
- Auglýsing -



