Þriðji úrslitaleikur Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17. Leikmenn ÍBV eru sannarlega með bakið upp við vegg í þessari rimmu hafandi tapað tveimur fyrstu viðureignunum. Lánist Val að vinna leikinn í dag á heimavelli hampa leikmenn liðsins Íslandsbikarnum í fjórða árið í röð og í 21. sinn frá upphafi.
Takist ÍBV að snúa við taflinu í dag með sigri kemur til fjórðu viðureignar í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn.
Valur vann fyrsta úrslitaleik liðanna, 39:33, í N1-höllinni fyrir viku. Liðið fylgdi sigrinum eftir með öðrum vinningi í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn var, 25:23.
Rétt er að hvetja fólk til þess að nýta þennan súldardag í höfuðborginni til þess að koma í N1-höllina og fylgjast með úrvalshandboltaleik í frábærri umgjörð. Sjá dagskrá dagsins í tilkynningu fyrir neðan auglýsinguna.



