- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Eva Björk hefur skilað sér heim

Handknattleikskonan Eva Björk Davíðsdóttir hefur skilað sér á ný heim í Gróttu eftir nokkurra ára veru með öðrum handknattleiksliðum hér heima og utanlands. Hún hefur síðustu sex ár verið kjölfesta Stjörnunnar og m.a. verið fyrirliði. Eva Björk er þrautreynd...

Ragnar ráðinn styrktarþjálfari beggja flokka

Ragnar Hermannsson hefur verið ráðinn styrktarþjálfari meistaraflokka handknattleiksdeildar Víkings. Raggi var styrktarþjálfari hjá karlaliði Víkings í vetur sem skilaði sér svo í auknum árangri og betra þreki inni á vellinum, segir í tilkynningu Víkings í dag. „Það er því mikið...

Einar Bragi átti stórleik

Einar Bragi Aðalsteinsson var í ham þegar IFK Kristinstad vann Malmö, 39:34, í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla í Kristinstad Arena. Einar Bragi skoraði 11 mörk í 14 skotum og var langmarkahæsti leikmaður IFK Kristinastad....

Donni og félagar unnu fyrstu orrustu undanúrslita

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF unnu fyrsta undanúrslitaleikinn við GOG í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 38:35, eftir framlengingu. Staðan var jöfn, 32:32, eftir hefðbundinn leiktíma. Leikurinn var kaflaskiptur því GOG hafði fjögurra marka forskot...
- Auglýsing-

Molakaffi: Lindberg, Morros, Zwickau, Øverby, þrír kvaddir, Green

Danski handknattleiksmaðurinn Hans Lindberg hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna og taka í staðinn við starfi íþróttastjóra handknattleiksliðsins HØJ. Liðið féll á dögunum úr dönsku úrvalsdeildinni eftir eins árs dvöl. Lindberg, sem verður 45 ára gamall í sumar,...

Þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst – Solberg er mætt í markið

Silje Solberg, landsliðsmarkvörður Noregs, er mætt til leiks með danska liðinu Esbjerg, nokkrum mánuðum fyrr en til stóð. Hún átti að mæta til leiks í upphafi næstu leiktíðar. Sökum þess að tveir aðalmarkverðir Esbjerg, Anna Kristensen og Katharina Filter,...

Lokahóf: Freyr og Rakel Oddný best hjá Haukum

Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt á dögunum þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið...

Jón Brynjar kominn í þjálfarateymi Lugi

Jón Brynjar Björnsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliða Víkings og Aftureldingar, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænska kvennaliðsins Lugi í Lundi. Jón Brynjar lét af störfum hjá Aftureldingu síðasta sumar og flutti til Svíþjóðar vegna framhaldsnáms eiginkonunnar. Jón Brynjar þjálfaði yngri flokka...
- Auglýsing-

Elín Klara og félagar unnu fyrsta úrslitaleikinn

IK Sävehof vann fyrsta úrslitaleikinn um sænska meistaratitilinn í handknattleik kvenna á heimavelli í kvöld. IK Sävehof lagði Skara HF, 25:22, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:10. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fimm af mörkum IK...

Þrjátíu þjóðir af 32 komnar með farseðil á HM 2027

Eftir að umspili um Evrópusæti á HM karla lauk í dag og forkeppni Norður-Ameríku í gær er víst hvaða 30 þjóðir taka þátt í heimsmeistaramóti karla sem haldið verður í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Aðeins tveimur sætum...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19431 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -